
Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Heilsugæsluritari - Heilsugæslan Seltjarnarnes og Vesturbæ
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
25.04.2025
Umsóknarfrestur
12.05.2025
Heilsugæsluritari - Heilsugæslan Seltjarnarnes og Vesturbæ
Heilsugæslan Seltjarnarnesi og Vesturbæ leitar að jákvæðum og drífandi heilsugæsluritara til að koma til liðs við okkur. Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt í starfsumhverfi sem er í stöðugri þróun. Um er að ræða 80-100% ótímabundið starf og æskilegt að viðkomandi geti hafið störf 1. júní nk. eða eftir nánara samkomulagi.
Á Heilsugæslunni starfar sérhæft og metnaðarfullt starfsfólk í hvetjandi og áhugaverðu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði fær að njóta sín. Hjá okkur ríkir góður starfsandi og áhersla er lögð á náið samstarf fagstétta og teymisvinnu.
Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).
Helstu verkefni og ábyrgð
Ritar sjúkraskýrslur, tilvísanir og vottorð í sjúkraskrárkerfi
Flokkun á pósti og rafrænum sendingum ásamt skönnun rannsóknarniðurstaðna, læknabréfa, frágangi gagna o.fl.
Umsjón með tímafjölda/dagskrá í móttöku
Aðstoðar við móttöku nýrra starfsmanna
Almenn upplýsingagjöf um starfsemi stöðvarinnar
Símsvörun, bókanir og móttaka skjólstæðinga
Meðhöndlun heilbrigðis- og persónuupplýsinga
Aðstoðar móttökuritara í móttöku
Ýmis önnur tilfallandi störf
Hæfniskröfur
Heilbrigðisgagnafræði, nám í heilbrigðisritun eða nám sem nýtist í starfi
Reynsla af ritarastarfi skilyrði
Reynsla af Sögukerfi æskileg
Reynsla af Heilsugátt kostur
Hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum er nauðsynleg
Góð almenn tölvukunnátta skilyrði
Þekking á upplýsinga- og skjalastjórnun
Nákvæm og skipulögð vinnubrögð
Góð almenn enskukunnáttu æskileg
Íslenskukunnátta skilyrði
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir hreinu sakavottorði.
Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 12.05.2025
Nánari upplýsingar veitir
Emilía Petra Jóhannsdóttir, emilia.petra.johannsdottir@heilsugaeslan.is

Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Heilsugæsluritari - Heilsugæslan Seltjarnarnes og Vesturbæ
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
25.04.2025
Umsóknarfrestur
12.05.2025