Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Sjúkra­húsið á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur í lyflækningum við Sjúkrahúsið á Akureyri / Internal medicine

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

25.04.2025

Umsóknarfrestur

30.05.2025

Sérfræðingur í lyflækningum við Sjúkrahúsið á Akureyri / Internal medicine

Sjúkrahúsið á Akureyri óskar eftir að ráða sérfræðing í lyflækningum. Um er að ræða 100% stöðu en möguleiki er á minna starfshlutfalli. Staðan er laus nú þegar eða eftir samkomulagi. Æskilegt er að viðkomandi hafi búsetu á Akureyri.

Vertu hluti af framtíðarsýn SAk og öflugri heilbrigðisþjónustu á norður- og austurlandi, þar sem fagmennska, öryggi og metnaður fara saman.

Af hverju Sjúkrahúsið á Akureyri?

  • Góð starfsaðstaða og sterk fagleg samvinna

  • Tækifæri til kennslu og þróunar

  • Lífsgæði og samfélag

  • Náttúruperla með frábærum möguleikum til útivistar

Næsti yfirmaður er Guðjón Kristjánsson yfirlæknir lyflækninga.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Hefðbundin vinna í lyflækningum á legudeild og göngudeild, auk ráðgjafar fyrir aðrar einingar sjúkrahússins

  • Þátttaka í bakvöktum

  • Kennsla og þjálfun heilbrigðisstarfsfólks og ungra lækna

  • Möguleiki á þátttöku í rannsóknarvinnu

Hæfniskröfur

  • Fullgilt íslenskt lækningaleyfi og fullgild réttindi í almennum lyflækningum

  • Undirsérgrein t.d. í smitsjúkdóma-, lungna-, innkirtla- eða nýrnalækningum er kostur

  • Hæfni til að vinna sjálfstætt og sýna frumkvæði

  • Hæfni og geta til að vinna í teymi

  • Samskiptahæfni og lipurð í mannlegum samskiptum

  • Við ráðningu verður lögð áhersla á faglega þekkingu og reynslu ásamt hæfileikum á sviði samskipta, samvinnu og sjálfstæðra vinnubragða

  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.

Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.

Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.

Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 30.05.2025

Nánari upplýsingar veitir

Guðjón Kristjánsson, gudjon@fsa.is

Sími: 463-0100

Kristjana Kristjánsdóttir, kristjanak@sak.is

Sími: 463-0100

Þjónustuaðili

Sjúkra­húsið á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur í lyflækningum við Sjúkrahúsið á Akureyri / Internal medicine

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

25.04.2025

Umsóknarfrestur

30.05.2025