Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Sjúkra­húsið á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Sumarstörf 2025 - Starfsmaður í aðstoð á dagdeild lyflækninga

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

24.01.2025

Umsóknarfrestur

13.02.2025

Sumarstörf 2025 - Starfsmaður í aðstoð á dagdeild lyflækninga

Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk) óskar eftir starfsfólki í aðstoð vegna sumarafleysinga á dagdeild lyflækninga. Um er að ræða dagvinnu.

Hjúkrunarfræðinemar á fyrsta og öðru ári eru hvattir til að sækja um!

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Stuðla að því að deildin sé snyrtileg

  • Verk sem þarf að framkvæma gangi hratt og örugglega fyrir sig

  • Tryggja að áhöld og hlutir séu á sínum stað

  • Aðstoða hjúkrunarfræðinga, lækna og móttökuritara sem starfa við deildina,

  • Símasvörun

  • Fara með sjúklinga í rannsóknir

  • Pantanir á vörum og fleira sem til fellur

Hæfniskröfur

  • Lögð er áhersla á frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og hæfileika í samskiptum og samvinnu.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kjölur hafa gert.

Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.

Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.

Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 13.02.2025

Nánari upplýsingar veitir

Inga Margrét Skúlad. Langdal, inga@sak.is

Sími: 463-0100

Kristjana Kristjánsdóttir, kristjanak@sak.is

Sími: 463-0100

Þjónustuaðili

Sjúkra­húsið á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Sumarstörf 2025 - Starfsmaður í aðstoð á dagdeild lyflækninga

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

24.01.2025

Umsóknarfrestur

13.02.2025