Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Land og skógur

Upplýsingar um starf

Starf

Sumarstörf hjá Landi og skógi

Staðsetning

Óstaðbundið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

24.01.2025

Umsóknarfrestur

05.02.2025

Sumarstörf hjá Landi og skógi

Land og skógur óskar eftir starfsfólki í sumarstörf við rannsóknir. Land og skógur er þekkingarstofnun á sviði gróður- og jarðvegsauðlinda og gegnir mikilvægu hlutverki við að bæta þessar auðlindir Íslands og stuðla að sjálfbærri nýtingu þeirra. Land og skógur sinnir vernd og endurheimt vistkerfa og ræktun skóga. Stofnunin starfar samkvæmt lögum um Land og skóg nr. 66/2023.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Um er að ræða stöður aðstoðarfólks við rannsóknir hjá Landi og skógi.

  • Starfið felst í vistfræðirannsóknum, m.a. vettvangsvinnu tengdri vöktun á ástandi lands og rannsóknum á þurrlendi, votlendi og skóglendi sem nýtast í loftlagsbókhaldi Íslands.

  • Starfinu fylgja talsverð ferðalög víða um land þar sem fjarvera frá starfsstöð getur verið löng og samfelld.

  • Gert er ráð fyrir mikilli útivinnu og löngum vinnudögum.

Hæfniskröfur

  • Stundvísi, ábyrgð og þjónustulund eru skilyrði.

  • Umsækjendur þurfa að hafa lokið a.m.k. fyrsta ári í háskólanámi á sviði náttúruvísinda eða skyldra greina.

  • Hæfni til að vinna í hópi og undir álagi er skilyrði.

  • Reynsla af útivist er kostur, sem og bakgrunnur í plöntugreiningu, jarðvegsfræði, skógfræði og reynsla af vinnu á rannsóknarstofu.

  • Bílpróf er æskilegt.

  • Reynsla af akstri við erfiðar aðstæður, þ.e. utan þjóðvegar, á torfærum slóðum, á breyttum bílum o.s.frv. er kostur.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Starfsstöðvar fara eftir verkefnum. Meðal annars er gert ráð fyrir að ráða fólk á Austurlandi og á höfuðborgarsvæðinu.

Störfin eru fjölbreytt og henta öllum kynjum. Upphafs dagur vinnu fer eftir verkefnum og verður á tímabilinu maí til júní.

Tekið er á móti rafrænum umsóknum á Starfatorgi með því að smella á hlekkinn hér að neðan. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 05.02.2025

Nánari upplýsingar veitir

Bryndís Marteinsdóttir, sumarstorf@landogskogur.is

Helena Marta Stefánsdóttir, sumarstorf@landogskogur.is

Þjónustuaðili

Land og skógur

Upplýsingar um starf

Starf

Sumarstörf hjá Landi og skógi

Staðsetning

Óstaðbundið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

24.01.2025

Umsóknarfrestur

05.02.2025