Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Almennur læknir/ tímabundið starf á geislameðferðardeild
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
60-100%
Starf skráð
24.01.2025
Umsóknarfrestur
06.02.2025
Almennur læknir/ tímabundið starf á geislameðferðardeild
Laust er til umsóknar starf almenns læknis á geislameðferðardeild Landspítala. Starfið er tímabundið til eins árs en möguleiki er á ráðningu til skemmri tíma, en þó ekki skemur en 6 mánuði. Starfið veitist nú þegar eða eftir nánara samkomulagi.
Unnið er í náinni samvinnu við sérfræðilækna í krabbameinslækningum og felur starfið í sér þverfaglega teymisvinnu með fjölmörgum öðrum sérgreinum læknisfræðinnar, s.s. skurðlækningum, lyflækningum, myndgreiningu og meinafræði. Einnig er góð samvinna við aðrar starfsstéttir sem sinna krabbameinssjúklingum.
Starfið nýtist afar vel þeim sem hafa hug á frekari sérnámi í krabbameinslækningum en einnig þeim sem hugsanlega hyggja á frekara sérnám í öðrum greinum þar sem starfið á deildinni er mjög fjölbreytt.
Starfsumhverfið á geislameðferðardeild er lærdómsmiðað. Læknirinn fær sérstaka starfslýsingu og skipulagða handleiðslu sérfræðilæknis. Fagleg árvekni og endurskoðun klínískra leiðbeininga og verkferla er hluti af fagmennsku deildarinnar. Vinnulagið á deildinni byggir á samvinnu fjölmargra starfsstétta með það að markmiði að gera meðferð og þjónustu við einstaklinga sem greinst hafa með krabbamein og ættingja þeirra skilvirkari.
Upphafsdagur starfs sem og starfshlutfall er samkomulag.
Helstu verkefni og ábyrgð
Þátttaka og þjálfun í ráðgjöf varðandi meðferð þeirra sem nýlega eru greindir með krabbamein, gerð meðferðaráætlunar og eftirlit með sjúklingum á meðan meðferð stendur
Greina og meðhöndla bráðavandamál tengd krabbameinum og geislameðferð
Þátttaka í samvinnu ólíkra sérgreina læknisfræðinnar s.s. eins og samráðsfundum
Þátttaka í vísindastarfi, þróunar- og gæðaverkefnum
Hæfniskröfur
Almennt íslenskt lækningaleyfi
Sérnámsgrunni eða sambærilegu starfsnámi lokið við upphaf starfs
Framúrskarandi læknisfræðileg þekking
Góð færni og lipurð í mannlegum samskiptum og teymisvinnu
Öguð vinnubrögð
Áhugi á að bæta sig í faglegu klínísku umhverfi
Gott vald á íslensku máli
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Læknir
Tungumálahæfni: íslenska 3/5
Starfshlutfall er 60-100%
Umsóknarfrestur er til og með 06.02.2025
Nánari upplýsingar veitir
Jakob Jóhannsson, jakobjoh@landspitali.is
Sími: 825 5146
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Almennur læknir/ tímabundið starf á geislameðferðardeild
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
60-100%
Starf skráð
24.01.2025
Umsóknarfrestur
06.02.2025