Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Lektor á sviði fjármunaréttar, Lagadeild, Félagsvísindasvið Háskóla Íslands

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

24.01.2025

Umsóknarfrestur

21.02.2025

Lektor á sviði fjármunaréttar, Lagadeild, Félagsvísindasvið Háskóla Íslands

Laust er til umsóknar fullt starf lektors á sviði fjármunaréttar við Lagadeild Félagsvísindasviðs Háskóla Íslands. Leitað er að einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á að helga sig kennslu, fræðastörfum og framþróun Lagadeildar.

Helstu verkefni og ábyrgð

Gert er ráð fyrir að áherslusvið lektorsins séu kennsla og rannsóknir á sviði fjármunaréttar, með áherslu á samninga- og kröfurétt. Gert er ráð fyrir að lektorinn sinni kennslu bæði í grunn- og framhaldsnámi í lögfræði, og sé tilbúinn til að sinna kennslu í öðrum fræðigreinum en nefndar eru að framan í samræmi við þarfir Lagadeildar á hverjum tíma.

Hæfniskröfur

  • Umsækjandi skal hafa lokið fullnaðarnámi í lögfræði með meistara- eða kandídatsprófi frá íslenskum háskóla eða sambærilegu prófi frá erlendum háskóla og hafa þekkingu og reynslu í samræmi við alþjóðleg viðmið fyrir viðkomandi starfsheiti á fræðasviðinu sem staðfest er með áliti dómnefndar eða með doktorsprófi frá viðurkenndum háskóla.

  • Frekara framhaldsnám, þ.m.t. doktorspróf á fræðasviðinu, er kostur.

  • Góð almenn þekking á íslenskum rétti og reynsla af lögfræðistörfum þar sem reynt hefur á notkun réttarreglna við úrlausn raunhæfra lögfræðilegra viðfangsefna.

  • Kennslureynsla á háskólastigi á sviði fjármunaréttar eða skyldra fræðigreina og góð hæfni til að miðla þekkingu.

  • Virkni og hæfni í rannsóknum á sviði lögfræði.

  • Hæfni í mannlegum samskiptum, áreiðanleiki, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.

Við ráðningu verður litið til þess að sá er starfið hlýtur falli sem best að aðstæðum og þörfum Lagadeildar og Félagsvísindasviðs.

Ráðið verður í starfið til fimm ára með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum, sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.

Starfið er laust frá 1. apríl 2025 og er miðað við að ráðið sé í starfið frá þeirri dagsetningu, þó ekki fyrr en lokið er störfum þeirra nefnda sem um ráðninguna fjalla.

Umsækjendur skulu láta eftirfarandi gögn fylgja umsókn sinni.

  1. Kynningarbréf þar sem m.a. kemur fram hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur

  2. Prófskírteini eða eftir atvikum vottorð um námsferil

  3. Ferilskrá (Curriculum Vitae) þar sem fram kemur reynsla af fræðastörfum

  4. Ritaskrá (auðkenna ber ritrýnt efni sérstaklega)

  5. Skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið

  6. Greinargerð um rannsóknar- og kennsluáform ef til ráðningar kemur

  7. Upplýsingar um mögulega umsagnaraðila sem hafa má samband við

Í umsókn skal koma fram hvert ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skal umsækjandi gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. Enn fremur skal umsækjandi láta fylgja með umsagnir um kennslu- og stjórnunarstörf sín eftir því sem við á.

Umsóknargögnum sem ekki er hægt að skila rafrænt skal skila í tvíriti til vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík.

Um meðferð umsókna, mat á hæfni umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og reglna nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands. Samkvæmt 38. gr. reglnanna er rektor heimilt að veita framgang í starf dósents eða prófessors við nýráðningu uppfylli viðkomandi þau skilyrði.

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans, sjá hér: http://www.hi.is/haskolinn/jafnrettisaaetlun#markmid2.

Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands, sjá hér: https://www.hi.is/haskolinn/malstefna%5Fhaskola%5Fislands.

Lagadeild Háskóla Íslands er ein sex deilda Félagsvísindasviðs og hefur verið starfrækt frá stofnun skólans árið 1911. Markmið Lagadeildar er að brautskrá framúrskarandi lögfræðinga sem eigi ríkan þátt í að efla og styrkja íslenskt réttarkerfi í nútíð og framtíð.

Á Félagsvísindasviði starfa á þriðja hundrað manns að kennslu og rannsóknum. Vísindafólk sviðsins stundar grunnrannsóknir, hagnýtar rannsóknir og þjónusturannsóknir og lögð er áhersla á fjölbreytta miðlun þekkingar, öflugar samræður við íslenskt samfélag og alþjóðlega fræðasamfélagið.

Háskóli Íslands er alþjóðlegur rannsóknaháskóli og stærsta kennslu-, rannsókna- og vísindastofnun landsins. Um 1.500 starfsmenn starfa í föstum störfum við skólann og um 2.200 eru lausráðnir. Nemendur við skólann eru um 12.500. Skólinn skiptist í sex grunneiningar, miðlæga stjórnsýslu og fimm fræðasvið. Háskóli Íslands býður fjölbreytt nám á öllum stigum og er eini háskóli landsins sem býður grunn- og framhaldsnám á öllum helstu fræðasviðum.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 21.02.2025

Nánari upplýsingar veitir

Hrefna Friðriksdóttir, hrefnafr@hi.is

Sími: 525-5974

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Lektor á sviði fjármunaréttar, Lagadeild, Félagsvísindasvið Háskóla Íslands

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

24.01.2025

Umsóknarfrestur

21.02.2025