Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða
Upplýsingar um starf
Starf
Yfirlæknir heilsugæslu á Ísafirði
Staðsetning
Vestfirðir
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
29.04.2024
Umsóknarfrestur
27.05.2024
Yfirlæknir heilsugæslu á Ísafirði
Við leitum að drífandi einstaklingi til að sinna starfi yfirlæknis heilsugæslu á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða. Um er að ræða 100% ótímabundið starf á spennandi vettvangi sem er bæði ábyrgðamikið og krefjandi.
Yfirlæknir stýrir daglegum rekstri heilsugæslunnar á Ísafirði, þar sem aðalstarfsstöð er, og ber faglega ábyrgð á heilsugæsluþjónustu allrar stofnunarinnar. Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri lækninga.
Á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða starfa um 270 manns sem veita almenna heilbrigðisþjónustu á heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Heilsugæslustöðvar eru á Ísafirði og Patreksfirði og heilsugæslusel í öllum byggðakjörnum heilbrigðisumdæmisins. Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef stofnunarinnar (<www.hvest.is>).
Boðið er upp á góða aðlögun í upphafi starfs og aðstoð við öflun húsnæðis.
Helstu verkefni og ábyrgð
Yfirumsjón með daglegri starfsemi heilsugæslu á Ísafirði
Fagleg ábyrgð á heilsugæsluþjónustu allrar stofnunarinnar
Mannaforráð með læknum á heilsugæslu á Ísafirði, þ.m.t. verktökum
Umsjón með námi læknanema, kandídata og sérnámslækna
Almenn störf heimilislæknis ásamt vinnu á öðrum deildum stofnunar eftir samkomulagi
Áætlanagerð, umbætur og þróun starfsemi
Hæfniskröfur
Íslenskt lækningaleyfi og sérfræðileyfi í heimilislækningum
Framúrskarandi samskiptafærni og góð leiðtogafærni
Frumkvæði og faglegur metnaður
Skipulagshæfni, sjálfstæð og öguð vinnubrögð
Drifkrafur og árangursmiðað viðhorf
Reynsla og áhugi til samstarfs við aðrar starfsstéttir og þátttaka í teymisvinnu
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt fylgibréfi þar sem gert er grein fyrir hæfni og áhuga á starfinu ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu.
Stöðunefnd lækna metur umsækjendur skv. 36. gr. laga 40/2007, sjá einnig umfjöllun á vef Embættis landlæknis, starfsreglur nefndarinnar og verklagsreglur stöðunefndarinnar. Mikilvægt er því að umsókninni fylgi sérprent eða ljósrit af greinum sem umsækjandi hefur skrifað og birt. Þá er umsækjanda heimilt að senda inn meðmæli eða önnur gögn sem votta hvernig hann hefur staðið sig í starfi. Umsögn stöðunefndar byggist á innsendum gögnum. Stöðunefnd getur tekið sér sex vikur til að yfirfara innsendar umsóknir.
Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim ásamt innsendum gögnum, mati stöðunefndar lækna og umsögnum meðmælenda.
Utan vinnu eru lífsgæðin mikil. Tækifærin til útivistar eru allt um kring, enginn tími fer í ferðalög til og frá vinnu. Börnin eru eins og blóm í eggi í leikskóla, grunnskóla, tónlistarskóla, íþróttastarfi, menntaskóla og jafnvel lýðskóla eða háskóla.
Fullt af spennandi atvinnutækifærum fyrir maka og margvísleg starfsemi sem krefst háskólamenntunar á svæðinu, sjá til dæmis laus störf á vef Ísafjarðarbæjar.
Öllum umsóknum verður svarað þegar tekin hefur verið ákvörðun um ráðningu.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 27.05.2024
Nánari upplýsingar veitir
Súsanna Björg Ástvaldsdóttir, susannaba@hvest.is
Sími: 450 4500
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða
Upplýsingar um starf
Starf
Yfirlæknir heilsugæslu á Ísafirði
Staðsetning
Vestfirðir
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
29.04.2024
Umsóknarfrestur
27.05.2024