Senda staðfestingu á starfstímabili
Þegar einstaklingur sækir um atvinnuleysisbætur er réttur viðkomandi reiknaður eftir starfstímabili og starfshlutfalli síðustu 12 mánaða fyrir umsókn.
Ferli
Einstaklingur sækir um atvinnuleysisbætur.
Atvinnurekandi fer inn á Mínar síður og smellir á Staðfesting starfstímabila á forsíðu. Viðkomandi þarf að vera prókúruhafi eða með umboð.
Staðfesting
Í staðfestingu þarf að skrá:
Starfstímabil einstaklings síðustu þriggja ára,
starfshlutfall og hlé í starfi ef það á við,
ástæðu starfsloka,
ótekið orlof við starfslok,
upplýsingar um greiðslur vegna starfsloka,
hvaða stéttarfélag og lífeyrissjóð var greitt í.
Þjónustuaðili
Vinnumálastofnun