Fara beint í efnið

Skrá fasteign til leigu fyrir íbúa Grindavíkur

Óskað er eftir fasteignum til leigu fyrir íbúa Grindavíkur til tímabundinnar búsetu. Eignirnar þurfa að vera lausar og tilbúnar til notkunar sem fyrst og til leigu í að minnsta kosti þrjá mánuði. Eignirnar mega vera með eða án húsgagna.

Leitað er eftir íbúðum og sérbýli á Suðurnesjum, höfuðborgarsvæðinu og nágrannasveitarfélögum.

Hægt er að skrá fasteign / húsnæði hér.

Skrá fasteign til leigu

Leigufélög með margar eignir geta sent lista af eignum á fsre@fsre.is og þurfa ekki að skrá eignir í skráningarformið að ofan.

Næstu skref:
  • Þegar fasteign hefur verið skráð inn og móttekin verður haft samband við tengilið varðandi nánari upplýsingar um fasteignina.

  • Eignirnar verða auglýstar til leigu eingöngu fyrir fólk með lögheimili í Grindavík.

Ef einhverjum spurningum er ósvarað um fyrirkomulag á skráningu eigna, vinsamlegast sendið tölvupóst á: fsre@fsre.is