Ef þú ert ekki með rafræn skilríki eða getur ekki tilkynnt um eigendaskipti rafrænt, er mögulegt að skila tilkynningu um eigendaskipti á pappírsformi í afgreiðslu Samgöngustofu.
Skil á tilkynningu
Seljandi og kaupandi fylla út eigendaskiptatilkynningu og undirrita hana, ásamt meðeiganda og umráðamanni ef við á.
Tilkynningin þarf að vera vottuð af tveimur einstaklingum sem hafa náð 18 ára aldri.
Tilkynningu skal skilað í frumriti til Samgöngustofu innan 7 daga.
Staðfesting auðkennis
Ef allir viðkomandi aðilar – þar á meðal kaupandi, seljandi, meðeigendur og umráðamenn eftir því sem við á – mæta á staðinn og framvísa gildum skilríkjum, er hægt að skrá eigendaskiptin strax á staðnum.
Ef einhver aðilanna er fjarverandi eða ekki með gilt skilríki, er send tilkynning í stafrænt pósthólf allra skráðra aðila á Ísland.is. Þeir fá þá sjö daga frest til að mótmæla eigendaskiptunum með því að óska eftir því að skráningarlás verði settur á kennitölu sína.
Mótmæli innan sjö daga
Staðfesting eigendaskipta
Að lokinni skráningu fá bæði kaupandi og seljandi tilkynningu í stafrænt pósthólf á Ísland.is með öllum helstu upplýsingum um skráninguna.
Gölluð eigendaskipti
Ef Samgöngustofa hefur athugasemdir vegna tilkynningar um eigendaskipti, eða tilkynningin er ekki rétt útfyllt, er ekki hægt að skrá eigendaskiptin. Í slíkum tilvikum er sendur tölvupóstur eða bréf til viðkomandi þar sem útskýrt er hvað þarf að laga. Gefinn er tveggja mánaða frestur til að lagfæra það sem amar að. Ef það tekst ekki innan þess tíma er beiðninni um skráningu hafnað.
Kaupsamningur og afsal
Kaupsamningur og afsal er á milli kaupanda og seljanda sem staðfesting á viðskiptum þeirra á milli. Þau skjöl þurfa ekki að berast Samgöngustofu.