Fara beint í efnið

Skoðun ökutækja

Endurskoðunarverkstæði

Ákveðin verkstæði geta bæði sinnt viðgerð og endurskoðun ökutækja.

Þú þarft að fara með ökutækið á endurstöðunarverkstæði áður en fresturinn rennur út.

Viðurkennd endurskoðunarverkstæði

  • Bifreiðaverkstæðið Pardus, Suðurbraut, 565 Hofsósi

  • Bílaleiga Húsavíkur, Garðarsbraut 66, 640 Húsavík

  • Bílaverkstæði Jóhanns Garðarssonar, Austurmörk 13, 810 Hveragerði

  • Bílaverkstæðið Rauðalæk, Rauðalæk, 851 Hellu

  • Bílson verkstæðið, Kletthálsi 9, 110 Reykjavík

  • Bílvogur Auðbrekku 17, 200 Kópavogi

  • Kaupfélag Skagfirðinga, Ártorgi 1, 550 Sauðárkróki

  • Múlatindur, Múlavegi 13, 625 Ólafsfirði

Þjónusta endurskoðunarverkstæða

Endurskoðunarverkstæði þurfa að hafa bæði aðstöðu og tækjabúnað til að geta endurskoðað ökutæki og einstaka hluta þess.

Hafðu samband við verkstæðið til að athuga hvort það geti framkvæmt endurskoðun að viðgerð lokinni, að öðrum kosti þarf að færa ökutækið til skoðunarstofu til endurskoðunar.

Kostnaður

Hafa þarf samband við viðkomandi endurskoðunarverkstæði.

Eftirlit með starfsemi

Faggildingaraðili tekur út og fylgist með starfsemi endurskoðunarverkstæða. Samgöngustofa hefur einnig takmarkað eftirlit með framkvæmdinni.

Athugasemdir eða kvartanir

Beina ber athugasemdum og kvörtunum til viðkomandi endurskoðunarverkstæðis. Samgöngustofa getur tekið slík mál til frekari afgreiðslu að uppfylltum skilyrðum.

Þjónustuaðili

Samgöngu­stofa