Fara beint í efnið

Skírteini svifflugmanns (Part-SFCL)

Skírteini svifflugmanns

Til að fá útgefið skírteini svifflugmanns SPL (Part-SFCL) þarf að ljúka bóklegu og verklegu námi hjá flugskóla sem hefur heimild til þjálfunar nemenda í svifflugi. Að loknu bóklegu námi hjá flugskóla þarf að standast bókleg próf hjá Samgöngustofu.

FCL.215 Próf í bóklegri þekkingu

Umsækjendur um flugmannsskírteini fyrir loftbelgi, skírteini svifflugmanns eða einkaflugmannsskírteini þurfa að ljúkra prófunum með 75% árangri að lágmarki í hverri námsgrein. Próf í bóklegu nám fer fram samkvæmt útgefinni námsskrá sem inniheldur níu próffög.

a) almennar námsgreinar:

  • Lög og reglur um loftferðir

  • Mannleg geta

  • Veðurfræði

  • Fjarskipti

b) sérstakar námsgreinar er lúta að mismunandi gerðum loftfara:

  • Flugfræði

  • Verklagsreglur í flugi

  • Afkastageta og áætlanagerð

  • Almenn þekking á loftförum

  • Flugleiðsaga

Próftakar
  • hafa 18 mánuði til að ljúka prófunum talið frá enda þess mánaðar sem fyrsta próf var þreytt

  • fá að hámarki fjórar tilraunir í hverju próffagi

Að loknu bóklegu prófi

Hefur nemandi 24 mánuði til að

  • ljúka verklegu námi

  • standast verklegt færnipróf með prófdómara

Þeir sem ekki fullnægja einhverjum framangreindra skilyrða þurfa að fá endurþjálfun hjá flugskóla og endurtaka bókleg próf Samgöngustofu.

Réttindi svifflugmanns (Part-SFCL)

Réttindi handhafa skírteini svifflugmanns eru að stjórna svifflugum án þess að taka greiðslu fyrir.

Til að mega flytja farþega þurfa flugmenn að hafa lokið að minnsta kosti einu af eftirfarandi:

  • 10 klst. fartíma

  • 30 flugtök

sem flugstjóri á svif- eða vélsvifflugum eftir útgáfu skírteinisins.

Til að viðhalda réttindum fyrir svifflugur (SPL)

þarf skírteinishafi að hafa lokið á síðustu 24 mánuðum; að minnsta kosti einu af eftirfarandi:

  • fimm fartímum, þ.m.t. 15 flugtök

  • tveimur þjálfunarflugum með flugkennara á svifflugur

  • standast hæfnipróf með prófdómara.

Til að viðhalda réttindum fyrir ferðasvifflugur (TMG)

þarf skírteinishafi að hafa lokið á síðustu 24 mánuðum, annað hvort:

  • að minnsta kosti 12 fartímum sem flugstjóri eða undir leiðsögn kennara í tví / einliða flugi;

    • þar af a.m.k 6 flugstundir og 12 flugtök og lendingar, ásamt einu þjálfunarflugi með flugkennara sem þarf að vera að lámarki 1 klukkustund

eða

  • standast hæfnipróf með prófdómara.

Lög og reglur

Skírteini svifflugmanns

Þjónustuaðili

Samgöngu­stofa