Sjúkradagpeningar greiðast til þeirra sem eru óvinnufærir að fullu vegna eigin veikinda eða slysa. Sjúkradagpeningar eru lægri en lágmarkslaun, til að ná framfærsluviðmiðum þarf einnig að sækja um sjúkradagpeninga stéttarfélags eða fjárhagsaðstoð sveitarfélags.
Einnig er hægt að nálgast upplýsingar sérstaklega um sjúkradagpeninga tengda heimafæðingum, áfengis- og vímuefnameðferðum, vegna bótaskyldra vinnuslysa og uppihaldskostnaðar við læknismeðferð erlendis.
Hvernig færð þú sjúkradagpeninga?
Umsóknarferli
Til að fá greidda sjúkradagpeninga þarft þú að:
Athuga hvort þú uppfyllir forsendur greiðslu
Afla nauðsynlegra fylgiskjala
- fylgiskjöl fara eftir aðstæðum þínum á síðustu tveimur mánuðum fyrir upphaf óvinnufærniSækja um sjúkradagpeninga og skila inn fylgigögnum
- sótt er um rafrænt á Réttindagátt
- einnig má koma undirrituðu umsóknareyðublaði til Sjúkratrygginga eða umboða sýslumanns utan höfuðborgarsvæðisins
Einfaldast er að hengja fylgigögn við rafræna umsókn þegar sótt er um en einnig má bæta skjölum við rafræna umsókn síðar. Ekki er nauðsynlegt að skila frumriti af fylgigögnum, skönnuð skjöl eða skýrar myndir duga.
Framlenging á samþykktum greiðslum
Skila þarf inn framhaldsvottorði frá lækni.
Ekki þarf að sækja um að nýju til að framlengja. Hægt er að bæta framhaldsvottorði við fyrri umsókn eða senda með öðrum hætti.
Afgreiðslutími umsókna
Umsóknir eru afgreiddar eins fljótt og auðið er og í þeirri röð sem þær berast. Biðtími er að jafnaði:
4 - 6 vikur fyrir nýjar umsóknir
1 vika eða skemur frá því gögn berast sem kallað var eftir
3 dagar eða skemur að afgreiða ný vottorð til framlengingar umsóknar
Tekið er við fyrirspurnum og ábendingum á dagpeningar@sjukra.is
Þjónustuaðili
Sjúkratryggingar