Fara beint í efnið

Sértækur húsnæðisstuðningur

Sértækur húsnæðisstuðningur er mánaðarleg greiðsla til að lækka húsnæðiskostnað Grindvíkinga sem þurfa að leigja húsnæði til íbúðar utan Grindavíkurbæjar vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga.

Stuðningurinn er tímabundinn til 31. ágúst 2024.

Skilyrði

Uppfylla þarf ákveðin skilyrði til að eiga rétt á sértækum húsnæðisstuðningi:

  • Umsækjandi og heimilismenn á umsókn voru með lögheimili eða tímabundið aðsetur í Grindavíkurbæ 10. nóvember 2023 og þurftu að yfirgefa heimili sitt á grundvelli laga um almannavarnir.

  • Umsækjandi og heimilismenn á umsókn búa í leiguhúsnæði og eiga þar lögheimili
    eða tímabundið aðsetur.

  • Umsækjandi þarf að vera 18 ára eða eldri.

  • Umsækjandi er aðili að leigusamningi sem skráður hefur verið í Leiguskrá HMS

  • Umsækjandi og heimilismenn, 18 ára og eldri, hafa gefið samþykki sitt til uupplýsingaöflunar eftir að umsókn hefur verið send inn.

Umsókn

Umsókn um sértækan húsnæðisstuðning / Samþykki heimilismanna 18 ára og eldri

Í umsókninni þarf að koma fram:

  • fastanúmer eignarinnar

  • kennitölur heimilismanna

  • kennitala leigusala

Ef það vantar einhver gögn færðu tilkynningu í tölvupósti um að umsókn hafi verið frestað og að þú eigir bréf undir Rafræn skjöl á Mínum síðum HMS með frekari upplýsingum. Það er mikilvægt að fylgjast með og svara innan 15 daga því annars getur umsókn verið synjað.

Reiknivél

Fjöldi heimilisfólks í húsnæði?

1

Húsnæðiskostnaður á mánuði?

Útreikningur húsnæðisstuðnings samkvæmt reiknivélinni byggir á þeim forsendum sem þú gafst upp og telst ekki bindandi ákvörðun um húsnæðisstuðning. Útreikningur miðast við greiðslur húsnæðisstuðnings fyrir heilt almanaksár.

Upphæð sértæks húsnæðisstuðnings

Mánaðarleg upphæð húsnæðisstuðningsins fer eftir fjölda heimilismanna og getur aldrei verið hærri en 90% af leigufjárhæð:

Fjöldi heimilismanna

Hámarks fjárhæð

1 heimilismaður

180.000 kr.

2 heimilismenn

237.600 kr.

3 heimilismenn

279.000 kr.

4 heimilismenn

302.400 kr.

5 heimilismenn

326.592 kr.

6 eða fleiri heimilismenn

352.800 kr.

Nánari upplýsingar hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) í síma 440-6400 eða á netfangið hms@hms.is.

Einnig er hægt að fá aðstoð við eftirfarandi í Tollhúsinu:

Upplýsingar um sértækan húsnæðisstuðning á pólsku

Leiðbeiningar og algengar spurningar og svör um sértækan húsnæðisstuðning á pólsku