Fara beint í efnið

Samþykkt skipa vegna nýsmíða

Umsókn um yfirferð og samþykkt smíðalýsinga, teikninga og annarra gagna

Áður en nýsmíði á skipum og bátum hefst, þarf að senda á Samgöngustofu teikningar, verklýsingar og önnur nauðsynleg gögn (tæknileg gögn) til umsagnar og samþykktar.

  • Skrá þarf öll skip sem er 6 metrar á lengd eða stærra, mælt milli stafna, í skipaskrá.

Ferlið

Samþykktarferli vegna nýsmíðar á skipi og þar til leyfilegt er að sigla á því er eftirfarandi:

  1. Tæknileg gögn - Tilkynna þarf Samgöngustofu um smíði á skipi og senda inn tæknileg gögn til samþykktar.

  2. Eftirlit með smíði - Eftir að Samgöngustofa fer yfir og samþykkir gögnin, eru þau send á skipasmíðastöð eða hönnuði og á skoðunarstofu eða flokkunarfélag, sem hefur eftirlit með smíðinni.

  3. Stöðugleiki - Samþykkja þarf stöðugleikagöng fyrir skipið og framkvæma hallaprófun fyrir öll skip önnur en opna báta undir 15 metrum mestu lengdar.

  4. Mæling skips - Framkvæma þarf mælingar til að staðfesta skipslengdir eins og skráningarlengd, mesta lengd og brúttótonnaútreikninga.

  5. Upphafsskoðun - Framkvæma þarf upphafsskoðun, á skipinu áður en það er tekið í notkun. Þetta felur í sér skoðun á öllum atriðum, sem tengjast þeirri notkun sem skipinu er ætlað.

  6. Skráning á skipaskrá - Nýskrá skal öll nýsmíðuð skip á skipaskrá og að lokinni og staðinni upphafsskoðun er hægt að skrá skipið á skipaskrá.

  7. Útgáfa skírteina - Þegar skip hefur staðist allar nauðsynlegar skoðanir er hægt að gefa út haffærisskírteini og önnur skipsskírteina tengdum rekstri skips. Skip má ekki fara í rekstur fyrr en haffærisskírteini hefur verið útgefið.

Kostnaður

Í samræmi við gjaldskrá Samgöngustofu skal greiða:

  • Vegna nýsmíði á skipi greiðist tímagjald a. í samræmi við gjaldskrá Samgöngustofu sem birt er á síðunni gjaldskrá Samgöngustofu

  • Ferðakostnaður - þurfi starfsmaður samgöngustofu að ferðast vegna vinnu í tengslum við samþykkt á skipum. Ferðakostaður skal greiddur í samræmi við gjaldskrá Samgöngustofu

  • Fast gjald skal greitt af skírteinum í samræmi við gjaldskrá Samgöngustofu

Lög og reglugerðir
  • Skipalög nr. 66/2021.

  • Reglugerð nr. 122/2004 um öryggi fiskiskipa sem eru 15 metrar eða lengri að mestu lengd.

  • Reglugerð nr. 592/1994 um smíði, hönnun og búnað skipa með mestu lengd allt að 15 metrar.

  • Reglugerð nr. 666/2001 um öryggi farþegaskipa í innanlandssiglingum.

  • Reglugerð nr. 466/2023 um skoðanir á skipum og búnaði þeirra.

  • Reglugerð nr. 189/1994 um björgunar og öryggisbúnað íslenskra skipa.

Umsókn um yfirferð og samþykkt smíðalýsinga, teikninga og annarra gagna

Þjónustuaðili

Samgöngu­stofa

Ábyrgðaraðili

Samgöngu­stofa