Upptaka af streymisfundi 9. maí um nýtt kerfi
15. maí 2025
Búið er að birta upptöku af opnum streymisfundi sem var haldinn 9. maí síðastliðinn um nýtt örorku- og endurhæfingarlífeyriskerfi sem tekur gildi 1. september 2025. Markmið fundarins var að upplýsa viðskiptavini sem eru með örorkulífeyri í dag og færast í nýtt örorku- og endurhæfingarkerfi um helstu þætti nýs kerfis.

Til að fá texta á myndbandið frá streymisfundinum 9. maí er smellt á tannhjólið neðst til hægri á skjánum þegar myndbandið er komið í gang. Þar er hægt að velja tungumál textans sem birtist neðst á skjánum.
Upptaka af streymisfundi TR 9. maí 2025 um nýtt örorku- og endurhæfingarlífeyriskerfi.
Dagskrá fundarins var eftirfarandi:
Nýtt kerfi - umbætur í þína þágu - Huld Magnúsdóttir, forstjóri TR
Örorkulífeyrir í nýju kerfi - Auðbjörg Nanna Ingvarsdóttir, sviðsstjóri örorkusviðs og Lena Rut Olsen, teymisstjóri á örorkusviði
Virknistyrkur og atvinnumál - Þóra Ágústsdóttir, verkefnastjóri VMST
Ávarp - Alma Ýr Ingólfsdóttir, formaður ÖBÍ
Spurt og svarað