Nýjar sjúkra- og endurhæfingargreiðslur frá 1. september birtar í greiðsluáætlunum
20. júní 2025
Nýtt endurhæfingarkerfi tekur gildi 1. september 2025. Hluti af innleiðingu nýja kerfisins eru útreikningar greiðslna fyrir þá einstaklinga sem verða með gilda endurhæfingaráætlun í september 2025 eða lengur.

Búið er að birta nýjar greiðsluáætlanir fyrir um 1.900 einstaklinga á Mínum síðum TR sem sýna greiðslur þeirra samkvæmt nýju kerfi. Langflest í hópnum fá hærri greiðslur.
Einfaldara greiðslukerfi
Nýja kerfið er einfaldara með færri greiðsluflokkum en eru í núverandi kerfi. Frá 1. september leggjast greiðsluflokkarnir sjúkra- og endurhæfingargreiðslur og heimilisuppbót saman, ef við á. Síðan eru dregin 45% af tekjum umfram frítekjumörk af þeirri fjárhæð. Því er aðeins birt ein samtala í greiðsluáætlun.
Stór áfangi
Birting nýrra sjúkra- og endurhæfingargreiðslna í greiðsluáætlunum er næsti stóri áfanginn í innleiðingu á nýju kerfi í haust, því nú geta þeir einstaklingar sem eiga rétt á þeim greiðslum séð upphæðir greiðslna frá og með 1. september.
TR mun á næstu vikum vinna að því að flytja alla einstaklinga sem eiga greiðslurétt frá 1. september 2025 yfir í nýja kerfið og birta þeim nýja greiðsluáætlun. Stefnt er að því að klára það verkefni í síðasta lagi í byrjun júlí nk.
Hér má finna spurningar og svör vegna nýrra greiðsluáætlana.