Breytingar á örorku- og endurhæfingarkerfinu
Umfangsmiklar breytingar á örorku- og endurhæfingarkerfinu taka gildi 1. september 2025. Þá tekur við nýr örorkulífeyrir og hlutaörorkulífeyrir, nýjar sjúkra- og endurhæfingargreiðslur og nýr virknistyrkur.
Einstaklingur sem er með örorkumat sem gildir til 31. júlí 2025 eða skemur fær senda tilkynningu áður en mat rennur út með upplýsingum um hvort mat hans verði framlengt eða hvort þörf sé á endurmati.
Einstaklingur með örorkumat sem gildir til 31. ágúst 2025 eða lengur flyst í nýtt kerfi og fær varanlegan rétt til örorkulífeyris.
Umsóknir um örorkulífeyri sem berast til og með 31. ágúst 2025 verða meðhöndlaðar samkvæmt núgildandi kerfi.
Í aðdraganda breytinganna mun Tryggingastofnun upplýsa einstaklinga með örorkumat um stöðu hvers og eins og hvað gera þarf til að yfirfærsla í nýtt kerfi gangi sem best fyrir sig.
Reiknivél örorku- og endurhæfingargreiðslna eftir 1. september 2025
Í reiknivélinni fyrir nýtt kerfi getur þú sett inn mismunandi forsendur og séð hvernig það hefur áhrif á mögulegar greiðslur þínar eftir 1. september 2025.
Nýtt örorkulífeyriskerfi
Í nýju kerfi eru færri greiðsluflokkar, dregið er úr tekjutengingum og aukinn hvati er til atvinnuþátttöku. Hér getur þú kynnt þér helstu breytingar á örorkulífeyriskerfinu.
Nýjar sjúkra- og endurhæfingargreiðslur
Með nýju kerfi fá einstaklingar í endurhæfingu aukinn stuðning og þess gætt að samfella verði í þjónustu. Reynt verður að aðstoða einstaklinga við að fara út á vinnumarkað í stað þess að enda ótímabært á örorkulífeyri. Kynntu þér helstu breytingar.