Nú getur þú séð upplýsingar um stæðiskort(P-kort) þitt og barna þinna á Mínum síðum á Ísland.is
Þar birtast almennar upplýsingar eins og númer stæðiskorts og gildistími þess. Ekki hægt að nýta upplýsingar úr stæðiskorti sem er að finna í Ísland.is á Mínum síðum í stað stæðiskortsins.
Umsækjandi þarf ekki lengur að koma við á skrifstofu sýslumanns nema ef viðkomandi eigi ekki rafræn skilríki.