Fara beint í efnið

Stafræn skírteini

Stafræn skírteini gera notendum kleift að færa sönnur á réttindi með farsímanum á hentugan og öruggan hátt þó plastskírteini gleymist eða týnist.

Efnisyfirlit

Stafræn skírteini eru útfærð af Stafrænu Íslandi fyrir opinbera aðila sem gefa þau út. Stafræn skírteini eru stafrænar útgáfur skírteina sem byggja á einhverskonar réttindum notandans. Sem dæmi um þetta má nefna ökuskírteini, vinnvélaréttindi, skotvopnaleyfi og örorkuskírteini. Útfærsla stafrænna skírteina er í tveimur liðum gagnvart notandanum:

  1. Birting á yfirliti yfir tiltekin réttindi í Ísland.is appinu og á mínum síðum á Ísland.is auk möguleika til að sækja stafrænt skírteini til vistunar í snjallsíma.

  2. Útgáfa á eiginlegu stafrænu skírteini sem vistað er í Apple Wallet á iPhone eða SmartWallet á Android.

Auk þessa má nota skírteinaskanna sem innbyggður er í Ísland.is appið, til þess að staðfesta að stafræn skírteini annarra notenda séu í gildi og ófölsuð.

Í þessu felst aukið öryggi sem tekur fram því sem flest plastskírteini geta boðið í dag.

Ávinningur fyrir stofnun

  • Bætt þjónusta við notendur útgefinna skírteina.

  • Möguleiki á því að draga úr umsvifum og kostnaði við útgáfu plastskírteina.

  • Aukið öryggi sem felst í rafrænni sannreyningu stafrænna skírteina dregur úr líkum á fölsunum.

Hvað þarf stofnun að gera?

  • Senda inn umsókn um samstarf á Stafrænt Ísland.is

  • Útvega þau gögn sem þarf fyrir stafræna skírteinið með vefþjónustu.

  • Vinna með Stafrænu Íslandi að innleiðingu, útgáfu og þjónustu skírteina.

  • Huga að framsetningu á persónuverndarstefnu og öðrum skilmálum.

Hvað hlutverki gegnir Stafrænt Ísland?

  • Stýrir hönnun og útfærslu á skírteininu í samráði við stofnun.

  • Útfærir skírteinayfirlit í appi og á mínum síðum Ísland.is.

  • Útfærir skírteinaskanna til að sannreyna gildi stafrænna skírteina.

  • Útfærir og rekur tæknilegt umhverfi stafrænna skírteina ásamt samstarfsaðilum.

Tæknilegar upplýsingar

  • Stafrænir passar eru gefnir út á PKPASS staðli Apple.

  • PDF417 strikamerki notað til að sannreyna skírteini.

  • Strikamerki hafa stuttan líftíma til að koma í veg fyrir falsanir.

  • Miðlægt skírteinakerfi Ísland.is miðlar gögnum milli útgáfuaðila og þjónustuaðila stafrænna passa á öruggan hátt.

  • Örugg vefþjónustusamskipti við útgefanda nota Strauminn (X-Road) öryggislag og auðkenningu með IDS.