Straumurinn (X-Road)
Upplýsingar um Strauminn
Straumurinn (X-Road) er gagnaflutningskerfi sem gerir upplýsingakerfum kleift að miðla gögnum sín í milli á öruggan og áreiðanlegan hátt. Straumurinn byggir á dreifðu kerfi, án miðlægrar gagnageymslu. Öll gögn eru því geymd hjá þeirri stofnun sem á þau og þeim aðeins miðlað þegar þörf er á.
Straumurinn auðveldar samvinnu milli stofnana og annarra opinberra aðila því ekki þarf að smíða sérstaka tengingu á milli þeirra. Sem innviðakerfi gerir Straumurinn rafræna þjónustu auðveldari, öruggari og skilvirkari. Allar opinberar stofnanir og sveitarfélög í landinu geta nýtt sér Strauminn til að flytja gögn sín á milli með það að markmiði að bæta þjónustu við almenning í landinu.
Dæmi um hvernig þjónusta Straumsins nýtist stofnunum, fyrirtækjum og almenningi:
Opinberir aðilar geta sent gögn á öruggan hátt sín á milli. Þannig geta sýslumannsembætti og Þjóðskrá til dæmis deilt gögnum sem nauðsynleg eru til að afgreiða umsókn einstaklings um ökuskírteini.
Með Straumnum geta opinberir aðilar tengst ákveðnum kjarnaþjónustum Stafræns Íslands og birt upplýsingar á Mínum síðum einstaklinga og fyrirtækja og/eða nýtt sér Umsóknarkerfi Ísland.is.
Öryggi gagna
Samskipti stofnana og fyrirtækja um Strauminn (X-Road) eru tryggð með dulkóðun. Miðlæg þjónusta Stafræns Íslands tengir þjónustuveitendur og þjónustuþega saman með stöðluðum hætti en hefur ekki aðgang að innihaldi samskiptanna.
Réttleiki gagna er tryggður með beinum samskiptum beggja aðila án aðkomu milliliða. Þjónustuveitandi tryggir að gögn séu ávallt uppfærð og aðgengileg þeim þjónustuþegum sem hafa viðeigandi heimild.
Samskipti beggja aðila eru að fullu rekjanleg og ljóst hver og hvenær þjónustuþegi nýtir gögnin þar sem samskipti eru tímastimpluð af miðlægum heimildarþjóni Stafræns Íslands.
Straumurinn er byggður upp í mörgum lögum sem saman tryggja hámarksvernd rafrænna samskipta. Fyrsta varnarlínan felst í vottun og auðkenningu notenda sem staðfestir hver er að nota kerfið hverju sinni. Í öðru lagi er gagnamiðlun varin með dulkóðun sem tryggir að enginn óviðkomandi geti lesið eða breytt gögnunum í flutningi milli aðila. Þriðja öryggislagið felur í sér tímastimplun aðgerða sem tryggir rekjanleika.
Ávinningur af Straumnum
Öruggur gagnaflutningur.
Stýring og yfirsýn á aðgengi.
Hagræðing í uppsetningu og rekstri.
Staðlaðar samskiptaleiðir milli upplýsingakerfa koma í veg fyrir tvíverknað í samskiptum við hið opinbera.
Gögn fara á milli stofnana en ekki fólk. Upplýsingar sem skráðar eru í einu kerfi geta flætt yfir í annað, ekki þarf að óska eftir upplýsingum sem opinberir aðilar búa þegar yfir.
Þróun Straumsins
Ísland er aðili að NIIS (Nordic Institute for Interoperability Solutions) sem vinnur að framþróun Straumsins. Straumurinn er þróaður af Eistum og Finnum fyrir opinbera þjónustu og hefur verið í notkun frá 2002. Innleiðing á Straumnum (X-Road) á Íslandi hófst formlega í nóvember 2018 þegar Bjarni Benediktsson, þáverandi fjármála- og efnahagsráðherra, undirritaði samstarfssamning við Finna og Eista.
Þegar Straumurinn hefur verið innleiddur geta opinberir aðilar miðlað upplýsingum sín á milli. Hægt er að sjá á vefsíðunni Stafræn skref hvort stofnun hefur innleitt Strauminn.