Útgáfa 10.júní 2025
10. júní 2025
Stafrænt Ísland heldur áfram að þróa og bæta stafrænar lausnir með reglulegum uppfærslum á bæði kjarnaþjónustum og einstökum stafrænum þjónustum. Með nýjustu uppfærslunni kynnum við bæði nýja virkni og viðbætur og lagfæringar sem miða að því að auka öryggi, bæta notendaupplifun og einfalda þjónustuferla fyrir bæði einstaklinga og fyrirtæki.

Hér fyrir neðan förum við yfir helstu breytingar og nýjungar í þessari útgáfu, bæði hvað varðar kjarnaþjónustur Stafræns Íslands og sértæk verkefni.
Mínar síður
Nýtt
Heilsa
Nýtt undir Heilsu á Mínum síðum, biðlistar, tilvísanir, lyfjaávísanir, lyfjaendurnýjanir og lyfjasaga. Allt undir eiginleika flaggi (e. feature flag).
Umsóknir
Lagfæringar
Umsókn um rekstrarleyfi
Senda SÍ auth token til DMR þegar verið er að sækja sakavottorð
Dánarbú
Slíta í sundur textareit í contentful fyrir fasteignanúmer fasteigna og fastanúmer ökutækja
Skráning ökutíma
Uppfært útlit á skráningu ökukennara á ökutíma. Ökukennarar sjá núna fallin próf nemenda
Umsókn um samrit
Notendur geta notað mynd úr skilríkja eða vegabréfaskrá ef gæðamerkt mynd er til staðar í stað þess að fara í myndatöku
Umsókn um skólaskipti, Umsókn um grunnskóla
Nýtt scope. Nýjir endapunktar fyrir prófunar og keyrslu umhverfi. Aðrar minniháttar breytingar á texta og innsláttarsvæðum.
Umsókn um tekjuáætlun
Fjarlægja eiginleika flagg (e. feature flag)
Stjórnartíðindi, umsókn
Bæta við innskráningarmöguleikum fyrir stofnanir í umboði
Umsóknarkerfi
Þróun umsóknarkerfis, viðhald og minniháttar lagfæringar
Nýtt
Húsaleiga
Fyrsta útgáfa af stafrænum húsaleigusamningi. Eingöngu aðgengileg í gegnum beina slóð fyrir ákveðna notendur eins og er.
Umsókn um verklegt próf
Fyrsta útgáfa af umsókn um skráningu verklegra prófa
Stjórnborð
Skjalaveita
Bætt við nýjum reit, zendesk ID. Notað til að tengja saman stofnanir sem innleitt hafa þjónustukerfið Zendesk og Stafræna pósthólfið.
Innskráningar og umboðskerfi
Nýtt scope fyrir Landlæknir
Leiðrétt villa þar sem umboðsupplýsingar (e. delegation) hélt sér á milli innskráningarforrita (e. clients)
Stafrænt pósthólf
Harðkóðaður hlekkur fjarlægður fyrir RSK þegar skjalategund er hlekkur.
Önnur verkefni
Meðmælakerfi
Endurskipulagning og minniháttar breytingar fyrir þing- og forsetakosningar. Uppsetning fyrir sveitarstjórnarkosningar.