Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Stafrænt Ísland Forsíða
Stafrænt Ísland Forsíða

Stafrænt Ísland

Stafrænt Ísland útboð 3.0

23. maí 2025

Tólf hugbúnaðarfyrirtæki hlutu brautargengi í nýafstöðnu þverfaglegu rammasamningsútboði í hugbúnaðargerð. Þetta er í þriðja sinn sem Stafrænt Ísland býður út á þennan hátt en mikil áhugi og þátttaka var að þessu sinni.

23 fyrirtæki buðu fram krafta sína í tvær gerðir hugbúnaðarteyma.

Rammasamningur Stafræns Íslands virkar þannig að aðilar á einkamarkaði bjóða fram krafta sína og sérfræðiþekkingu í tvær tegundir teyma, alhliðateymi (e. full stack team) og vefteymi (e.web team). Það er því ekki verið að bjóða í eitt tiltekið verkefni heldur bjóða fram þverfagleg sérfræðiteymi sem taka þátt í þróunarverkefnum og stafvæðingu hins opinbera í samstarfi við Stafrænt Ísland. 23 fyrirtæki buðu fram alhliðateymi og 14 fyrirtæki buðu fram vefteymi. Aðferðafræði útboðsins, að bjóða fram þekkingu en ekki í tiltekið verk, er árangursrík leið í opinberum innkaupum sem notuð hefur verið undanfarin ár og hafa opinberir innkaupaaðilar erlendis frá sýnt ferlinu mikinn áhuga. Um er að ræða mikilvæga fjárfestingu í stafrænum innviðum hins opinbera og þróun Ísland.is. Ferlið er sem fyrr segir framkvæmt með þessu móti í þriðja skiptið og því komin mikilvæg reynsla.

Útboðsferlið

Útboð og útboðskröfur voru auglýstar þann 6.mars 2025. Í kjölfarið var haldinn kynningarfundur með áhugasömum bjóðendum. Allar fyrirspurnir fóru í gegnum útboðsteymi Fjársýslunnar og tryggt að bæði spurningar og svör skiluðu sér jafnt til allra. Þann 8. apríl var frestur til að skila inn tilboðum og voru útboðsgögn opnuð. Teymum sem uppfylltu grunnhæfniskröfur var boðin þátttaka í verkefni. Allir bjóðendur uppfylltu kröfurnar og fengu boð um þátttöku að þessu sinni eða 22 alhliðateymi og 14 vefteymi. Verkefni voru afhent þann 5.maí með ítarlegri kröfulýsingu og matskvörðum. Átta manna hæfnisnefndir hlýddu á kynningar teymanna en meðaltal þeirra var notað til grundvallar í heildarmati. Hæfnisnefndirnar samanstóðu af aðilum frá stofnunum, einkamarkaði sem og frá Stafrænu Íslandi. Vegna mikils áhuga þurfti að skipta kynningum alhliðateyma á tvo daga en alls 22 sjö manna teymi kynntu verkefni sín. Áhugi var sömuleiðis meðal vefteyma en 14 fimm manna vefteymi kynntu sín verkefni.

Skipting á heildarmati:

  • 25% Verð

  • 25% Hæfni teyma

  • 35% Kynning

  • 15% Gagnaskil

Verkefnin að þessu sinni voru annars vegar að stilla umfangsmiklum vef Alþingis upp á Ísland.is (vefteymi) og svo útfærsla á einfölduðu skattframtali einstaklinga með kjarnaþjónustum Stafræns Íslands (alhliðateymi). Úrlausnir verkefnana hjá teymunum voru til fyrirmyndar og ljóst að á íslenskum markaði er mikil hæfni og þekking þegar kemur að hugbúnaðarþróun.

Niðurstaðan

Eins og áður segir hefur Stafrænt Ísland samið við 12 fyrirtæki, 20 teymi til að vinna að stafrænni vegferð hins opinbera. Þetta voru þau teymi sem fengu hæsta heildarmat. Teymin má sjá hér fyrir neðan en þau eru birt í stafrófsröð.

Alhliðateymi

  • 1x Internet ehf.

  • Advania

  • APRÓ

  • Aranja

  • Deloitte ehf.

  • Gangverk

  • Hugsmiðjan

  • Júní Digital ehf.

  • Origo ehf.

  • Revera

Vefteymi

  • 14island

  • Advania

  • APRÓ

  • Aranja

  • Deloitte ehf.

  • Gangverk

  • Hugsmiðjan

  • Itera ehf

  • Júní Digital ehf

  • Origo ehf

Gert er ráð fyrir að nýr rammasamningur taki formlega gildi í júní.

Fylgstu með því nýjasta

Skráðu þig á póstlista Stafræns Íslands og fylgstu með því nýjasta í stafrænni opinberri þjónustu.