Umhverfismatsdagurinn 2025
5. júní 2025
kl. 09:00 til 12:00
Nauthól
Umhverfismatsdagurinn 2025 fer fram þann 5. júní í Nauthól frá kl. 9 til 12. Hægt verður að fylgjast með í beinu streymi. Umhverfismatsdagurinn er árleg ráðstefna um umhverfismat, þar sem fjallað er um það sem efst er á baugi í málaflokknum hverju sinni.
Að þessu sinni verða þemu dagsins tvö, annað tileinkað víðernum og hitt samgöngum. Meðal frummælenda er Catherine Harry frá NatureScot sem mun segja frá skoskum leiðbeiningum um mat á áhrifum framkvæmda á víðerni auk þess að gera grein fyrir því hvernig áherslur þarlendra yfirvalda varðandi víðerni hafa þróast síðastliðin ár. Því verður fylgt eftir með niðurstöðum nýútkominnar víðernaskýrslu sem unnin var fyrir umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið auk þess sem skyggnst verður inn í vinnu og forsendur að baki nýju víðernakorti sem unnið var af Wildland Research Institute við Háskólann í Leeds að frumkvæði íslenskra náttúruverndarsamtaka.
Þá verður sjónum beint að vegaframkvæmdum og áskorunum tengdum samgönguuppbyggingu, bæði hvað snertir umhverfisáhrif á framkvæmdartíma verkefna sem eru í farvatninu á höfuðborgarsvæðinu og áhrif á þjóðvegi og umferð vegna umfangsmikilla framkvæmda víða um land.
Öll sem hafa áhuga eru hvött til að koma og vera með, hlýða á erindi og taka þátt í umræðum.
Dagskrá
9:00-10:25 Víðerni
Opnun og ávarp forstjóra
Rise and fall of Scotland’s wild land: policy in practice. Catherine Harry hjá Nature Scot.
Wilderness Mapping in Iceland – Overview and comparison of methods. Michaël Bishop, Háskóla Íslands.
Víðernakortið. Snæbjörn Guðmundsson og Ólafur Hauksson.
Umræður
Kaffihlé
10:50-12:00 Samgöngur
Samgöngumódel fyrir höfuðborgarsvæðið. Betri samgöngur.
Valkostagreiningar í samgöngum. Lilja Karlsdóttir, VSB verkfræðistofu.
Stórframkvæmdir og vegakerfið – lykilþættir í umhverfismati. Hólmfríður Bjarnadóttir, Vegagerðinni.
Umræður og ráðstefnulok.