Stafrænt deiliskipulag – upplýsingafundur
13. febrúar 2025
kl. 15:00 til 16:00
Hér má nálgast útsendingu viðburðarins á Teams.
Skipulagsstofnun boðar til upplýsingafundar um stafrænt deiliskipulag, þann 13. febrúar næstkomandi kl. 15:00-16.00.
Fundurinn fer fram í húsakynnum Skipulagsstofnunar og er jafnframt sendur út á Teams þar sem einnig verður hægt að taka þátt í umræðum. Lokað hefur verið fyrir skráningar í sal.
Eins og kunnugt er tóku ákvæði skipulagslaga um stafrænt deiliskipulag gildi um nýliðin áramót og hefur Skipulagsstofnun undirbúið innleiðingu þess undanfarna mánuði með ýmsu móti.
Á fundinum verður farið yfir innihald stafrænna deiliskipulagsgagna og hvernig innleiðingu þess verður háttað á komandi mánuðum.
Fundurinn er liður í kynningu stofnunarinnar á breyttu verklagi við gerð deiliskipulagsgagna.
Dagskrá:
Ólafur Árnason, forstjóri Skipulagsstofnunar opnar fundinn
Innihald stafræns deiliskipulags og yfirferð gagna. Albert Þorbergsson.
Innleiðing stafræns deiliskipulags. Guðrún Lára Sveinsdóttir.
Gert er ráð fyrir umræðum í lokin.