Umsagnir Skipulagsstofnunar
Áður en áætlun sem háð er umhverfismati er afgreidd er viðeigandi umsagnaraðilum auk almennings og annarra hagsmunaaðila gefið tækifæri til að veita umsögn um tillöguna og umhverfismat hennar.
Hér má nálgast þær umsagnir sem Skipulagsstofnun hefur veitt um tillögur að áætlunum og umhverfismat þeirra. Athugið að hér er eingöngu um að ræða aðrar áætlanir en skipulagsáætlanir sveitarfélaga. Skipulagsáætlanir sveitarfélaga og umhverfismat þeirra má nálgast í Skipulagsvefsjá.