Skipulagskerfið
Skipulag er formleg og bindandi áætlun sveitarstjórnar um fyrirkomulag byggðar og mótun umhverfis. Skipulag á að tryggja hagkvæma og sjálfbæra nýtingu lands.
Í skipulagi eru meðal annars teknar ákvarðanir um hvernig landi skuli ráðstafað, til dæmis fyrir íbúðarbyggð, frístundabyggð, verslun, náttúruvernd eða landbúnað. Þar eru líka teknar ákvarðanir um fyrirkomulag gatna og lóða og settar reglur um hönnun bygginga, svo sem hæðafjölda, byggingarefni, þakform og fjölda íbúða.
Skipulagsáætlanir sveitarfélaga
Sveitarfélög vinna þrennskonar skipulagsáætlanir:
Svæðisskipulag: Samræmd stefna tveggja eða fleiri sveitarfélaga um sameiginleg hagsmunamál, svo sem um byggðarþróun, samgöngur eða vatnsvernd.
Aðalskipulag: Stefna sveitarfélags um landnotkun, náttúruvernd og þróun byggðar í öllu sveitarfélaginu.
Deiliskipulag: Skipulag fyrir afmarkað svæði, svo sem hverfi eða götureiti, sem felur í sér skipulagsskilmála um byggðarmynstur, lóðir, byggingar og fleira.
Skipulagsáætlanir þurfa að vera í innbyrðis samræmi. Svæðisskipulag er rétthærra en aðalskipulag og aðalskipulag rétthærra en deiliskipulag. Við gerð skipulagsáætlana skal taka mið af landsskipulagsstefnu.
Byggingarleyfi og framkvæmdaleyfi þurfa að byggja á skipulagi og vera í samræmi við það.
Svæðis- aðal- og deiliskipulag skal unnið á stafrænu formi með samræmdum hætti í landupplýsingakerfi.
Hlutverk aðila við gerð skipulags
Að skipulagsgerð koma ýmsir aðilar, sem gegna ólíkum hlutverkum:
Sveitarfélög vinna og samþykkja aðalskipulag, deiliskipulag og svæðisskipulag. Þau veita líka byggingar- og framkvæmdaleyfi og hafa eftirlit með framkvæmdum.
Landeigendur og framkvæmdaraðilar geta unnið tillögur að deiliskipulagi með heimild sveitarstjórnar.
Opinberar stofnanir veita umsagnir um tiltekna þætti við gerð skipulags.
Almenningur getur tekið þátt í gerð skipulags í gegnum íbúafundi eða annað samráð sem sveitarfélagið stendur fyrir, og komið á framfæri ábendingum og athugasemdum á formlegum kynningartíma skipulagstillagna í gegnum Skipulagsgátt.
Skipulagsstofnun hefur eftirlit með framkvæmd skipulagslaga og skipulagsreglugerðar sem felst meðal annars í að:
Veita leiðbeiningar um skipulagsmál.
Fara yfir skipulagstillögur sveitarfélaga, aðal-, deili- og svæðisskipulag.
Staðfesta aðal- og deiliskipulag.
Varðveita og miðla upplýsingum um skipulagsáætlanir.
Stofnunin heldur jafnframt úti Skipulagsgátt, samráðsgátt um skipulagsmál, mat á umhverfisáhrifum og framkvæmdarleyfi.