16. janúar 2025
Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Skagafjarðar vegna hafnarsvæðis á Sauðárkróki
Sveitarstjórn hefur auglýst tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020-2035 vegna hafnarsvæðis á Sauðárkróki.
Skipulagsgögn eru til sýnis í Skipulagsgátt og þurfa athugasemdir að berast þangað eigi síðar en 28. febrúar 2025.