Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra vegna stækkunar á verslunar- og þjónustusvæði VÞ9, Tindasel 1 og 2
13. febrúar 2025


Skipulagsstofnun staðfesti 13. febrúar 2025 breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 sem samþykkt var í sveitarstjórn 11. desember 2024.
Í breytingunni felst að verslunar- og þjónustusvæði VÞ9 er stækkað úr 2 hekturum í 12,7 hektara. Áætluð er uppbygging á hóteli með gistingu fyrir allt að 200 manns ásamt afþreyingarþjónustu s.s. heilsulind. Heildarbyggingarmagn er allt að 5000 m2.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga
Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.