Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna Arnarlands
16. maí 2025

Skipulagsstofnun staðfesti, 16. maí 2025, breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem samþykkt var í bæjarstjórn 6. mars 2025.
Í breytingunni felst að verslunar- og þjónustusvæði 3.37 VÞ á Arnarneshálsi er skilgreint sem miðsvæði 3.37 M. Á svæðinu er gert ráð fyrir uppbyggingu verslunar- og þjónustustarfsemi með áherslu á heilsutengda starfsemi auk 400-500 íbúða. Auk þess er mörkuð stefna um legu borgarlínu um svæðið til nánari útfærslu í deiliskipulagi.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.