Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Bláskógabyggðar vegna Stórholts 2
22. júlí 2025
Skipulagsstofnun staðfesti, 22. júlí 2025, breytingu á Aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015-2027 sem samþykkt var í sveitarstjórn 21. maí 2025.
Í breytingunni felst að landbúnaðarsvæði er breytt í verslunar- og þjónustusvæði VÞ51 í tengslum við ferðaþjónustu. Skipulagssvæðið er 3,48 ha með fjölda gistirúma 56. Hámarksbyggingarmagn er 1500 m2.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.
Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.