Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Skipulagsstofnun Forsíða
Skipulagsstofnun Forsíða

Skipulagsstofnun

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Bláskógabyggðar vegna minnkunar frístundabyggðar í Útey II og nýrrar frístundabyggðar norðan Ósholts

7. febrúar 2025

osholt

Skipulagsstofnun staðfesti 7. febrúar 2025 breytingu á Aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015-2027 sem samþykkt var í sveitarstjórn 18. nóvember 2024.

Í breytingunni í Útey II felst að alls minnkar frístundabyggð F21 í 289,5 ha og landbúnaðarsvæði stækkar sem breytingunni nemur. Þá er ný 7,8 ha frístundabyggð F113 skilgreind. Norðan Ósholts er þremur nýjum reitum bætt við fyrir frístundabyggð, F110, F111 og F112, samanlagt 22,6 ha að stærð. Jafnframt verður staðsetning vatnsbóls VB5 og efnistökusvæðis E25 leiðrétt. Grann- og fjarsvæði í kringum VB5 eru skilgreind á uppdrætti.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.

Skipulagsstofnun

Hafa samband

Sími 595 4100
skipulag@skipulag.is

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga: 9 til 16
Föstudaga: 9 til 13

Borg­ar­túni 7b

105 Reykjavík
Kennitala: 590269 - 5149

Samfé­lags­miðlar

Facebook
Instagram