Fara beint í efnið
Skipulagsstofnun Forsíða
Skipulagsstofnun Forsíða

Skipulagsstofnun

Framkvæmdaleyfi

Framkvæmdaleyfi er leyfi sveitarstjórnar fyrir meiriháttar framkvæmdum sem hafa áhrif á umhverfið og breyta ásýnd þess, svo sem breytingar lands með jarðvegi eða efnistöku eða aðrar framkvæmdir sem falla undir lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana.

Framkvæmdaleyfi skal ávallt vera í samræmi við skipulag.

Framkvæmdaleyfi má veita án deiliskipulags eða grenndarkynningar ef framkvæmd er ítarlega skýrð í aðalskipulagi. Annars þarf að vera í gildi deiliskipulag af viðkomandi svæði svo hægt sé að gefa framkvæmdaleyfi. Sveitarstjórn getur þó veitt framkvæmdaleyfi án deiliskipulags, ef grenndarkynning fer fram og framkvæmdin er í samræmi við aðalskipulag varðandi landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar.

Umsókn um framkvæmdaleyfi

Sótt er um framkvæmdaleyfi hjá skipulagsfulltrúa viðkomandi sveitarfélags. Nánar um gögn vegna framkvæmdaleyfisumsóknar, sjá 7. grein reglugerðar um framkvæmdaleyfi.

Sveitarstjórn hefur eftirlit með að framkvæmdir séu í samræmi við útgefið framkvæmdarleyfi.

Gildistími framkvæmdaleyfis

Sveitarfélög ákvarða hámarksgildistíma framkvæmdaleyfis en ef tiltekin framkvæmd hefst ekki innan 12 mánaða frá samþykki sveitarstjórnar fyrir veitingu leyfis, fellur leyfið sjálfkrafa úr gildi samanber 15. grein skipulagslaga og þarf þá að sækja um nýtt framkvæmdaleyfi.

Framkvæmdaleyfi vegna matsskyldra framkvæmda

Óheimilt er að gefa út leyfi fyrir framkvæmd sem fellur undir lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana fyrr en álit Skipulagsstofnunar um umhverfismat framkvæmdar liggur fyrir eða ákvörðun stofnunarinnar um að framkvæmd sé ekki matsskyld.

Við umfjöllun um umsókn um framkvæmdarleyfi skal sveitarstjórn kynna sér umhverfismatsskýrslu framkvæmdaraðila og leggja álit Skipulagsstofnunar um umhverfismatið til grundvallar.

Sveitarstjórn skal birta opinberlega ákvörðun sína við útgáfu leyfis og niðurstöðu álits Skipulagsstofnunar innan tveggja vikna frá útgáfu leyfis.

Framkvæmdir háðar framkvæmdaleyfi

Framkvæmdir sem nefndar eru í lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana eru ávallt háðar framkvæmdaleyfi. Ýmsar aðrar framkvæmdir sem hafa áhrif á umhverfið og breyta ásýnd þess kunna einnig að vera háðar framkvæmdaleyfi.

Leyfisveitandi metur hvort framkvæmd sem ekki er tilgreind í lögum um mat á umhverfisáhrifum teljist meiriháttar og sé því háð framkvæmdaleyfi.

Við mat á því hvort framkvæmd teljist meiriháttar er tekið mið af stærð svæðis, umfang framkvæmdar, varanleika og áhrifum á landslag og ásýnd umhverfisins og öðrum umhverfisáhrifum.

Í í 7. grein reglugerðar um framkvæmdaleyfi eru taldar upp ýmsar aðrar framkvæmdir sem geta verið háðar framkvæmdaleyfi.

Framkvæmdir sem ekki eru háðar framkvæmdaleyfi

  • Framkvæmdir sem háðar eru byggingarleyfi eru ekki háðar framkvæmdaleyfi.

  • Framkvæmdir sem teljast óverulegar, það er sem hafa óveruleg áhrif á umhverfið og ásýnd þess, eru ekki háðar framkvæmdaleyfi.

Leiki vafi á hvort framkvæmd sé háð framkvæmdaleyfi, geta umsækjandi og sveitarstjórn leitað ákvörðunar úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.

Skipulagsstofnun

Skipu­lags­stofnun

Sími 595 4100
landsskipulag@skipulag.is

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga: 9 til 16
Föstudaga: 9 til 13

Borg­ar­túni 7b

105 Reykjavík
Kennitala: 590269 - 5149

Samfé­lags­miðlar

Facebook
Instagram