Námskeið fyrir þá sem hafa hug á að sækja um leiðsöguhund
7. júlí 2025
Námskeið fyrir blint og sjónskert fólk um notkun, umhirðu og þjálfun leiðsöguhunda, sem er skilyrði þess að eiga inni virka umsókn um leiðsöguhund. Haldið á myndfundi í september.

Fyrirhugað er námskeið fyrir blint og sjónskert fólk um notkun, umhirðu og þjálfun leiðsöguhunda, sem er skilyrði þess að eiga inni virka umsókn um leiðsöguhund.
Fyrri hluti námskeiðsins verður haldið 3. september sem saman stendur m.a af fræðslu og samtali um grunnatriði hundaþjálfunar, umhirðu og umönnun hunda, þjálfunarferli o.fl.
Seinni hluti námskeiðsins verður haldið 16.-18 september, þá verður áframhaldandi fræðsla svo og verkleg kennsla þar sem þátttakendum gefst færi á að prófa leiðsöguhund undir leiðsögn hundaþjálfara.
Námskeiðið fer fram á ensku en starfsmaður frá Sjónstöðinni mun aðstoða með þýðingar fyrir þá sem vilja. Vinsamlegast setjið það í athugasemd við skráningu ef óskað er eftir aðstoð vegna þessa.
Staðsetning og tími:
Fyrri hluti 3. september kl. 13:00-16:00 í gegnum fjarfundarbúnað heima eða hjá Sjónstöðinni. Seinni hluti 16.-18 september í húsnæði Sjónstöðvarinnar að Hamrahlíð 17.
Leiðbeinendur eru leiðsöghundaþjálfarar frá Kustmarkens leiðsöghundaræktun í Svíþjóð
Hægt er að skrá sig á námskeiðið hjá Sjónstöðinni í síma 545-5800 eða með tölvupósti sjonstodin@sjonstodin.is . Síðasti dagur til skráningar er miðvikudagurinn 27.ágúst.