Lokað fyrir endurgjaldslausa túlkaþjónustu út júní
2. júní 2025
Fjármagn til endurgjaldslausrar túlkaþjónustu í daglegu lífi á 2. ársfjórðungi 2025 er uppurið. Myndsímatúlkun SHH verður því lokuð frá og með 4. júní til og með 30. júní. Ekki verður hægt að verða við beiðnum um endurgjaldslausa túlkun í daglegu lífi sem fara á fram á sama tímabili og hefur ekki þegar verið pöntuð. Túlkaþjónusta gegn gjaldi verður áfram veitt. Þriðjudaginn 1. júlí verður hægt að veita endurgjaldslausa túlkaþjónustu að nýju og þá opnar Myndsímatúlkun SHH aftur. Frá þeim degi verður afgreiðslutími Myndsímatúlkunar SHH kl. 10:00-14:00 um ófyrirséðan tíma.
