Drónabann yfir 60 metra hæð yfir jörðu - uppfært 30. apríl 2024
30. apríl 2024
Bannið gildir til miðnættis 31. maí nk.
Vegna eldgoss og nauðsynlegs neyðar- og rannsóknaflugs, hefur Samgöngustofa að beiðni Samhæfingarstöðvar Almannavarna bannað drónaflug yfir 60 metrum yfir jörð og ofar.
Bannið er á svæði sem nær í tveggja sjómílna radius umhverfis eldgosið, miðað er við hnit 635300N02223W, afmarkað sem rauður hringur á mynd. Bannið gildir til miðnættis að kvöldi 31. maí nk. Undanþágubeiðnir berist samhæfingarstöð Almannavarna í netfangið info@sst.is eða í síma 831-1644.
Fréttin var uppfærð 30. apríl með framlengdum gildistíma.