Persónuvernd tekur út vinnslu persónuupplýsinga hjá ákæruvaldinu
16. maí 2025
Persónuvernd hefur ákveðið að gera úttektir á vinnslu persónuupplýsinga hjá þeim sem fara með ákæruvald hér á landi, þ.e. ríkissaksóknara, héraðssaksóknara og lögreglustjórum, eins og vinnslunni er háttað í dag. Markmið úttektanna er að kanna hvort ákærendur fari að ákvæðum laga nr. 75/2019 um vinnslu persónuupplýsinga í löggæslutilgangi í tengslum við vinnslu persónuupplýsinga í sönnunargögnum.

Tilefni úttektanna eru nýlegar fréttir um meintan gagnastuld tveggja fyrrverandi lögreglumanna úr rannsóknum lögreglu og embættis sérstaks saksóknara.
Annars vegar hefur Persónuvernd til skoðunar hvort ákærendur eyði persónuupplýsingum í sönnunargögnum í samræmi við lög. Hins vegar er til athugunar hvort fullnægjandi öryggi persónuupplýsinga í sönnunargögnum sé tryggt með hliðsjón af þeirri hættu sem kann að stafa af því að þeir sem starfa á vegum embættanna, þ.m.t. verktakar, hagnýti á ólögmætan hátt þær persónuupplýsingar í sönnunargögnum sem þeir hafa aðgang að starfsins vegna.
Úttektirnar hafa þegar verið boðaðar og Persónuvernd kallað eftir gögnum og upplýsingum í þágu rannsóknarinnar.