Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Persónuvernd Forsíða
Persónuvernd Forsíða

Persónuvernd

Meta byrjar að þjálfa gervigreind með persónulegum gögnum Evrópubúa – notendur þurfa að bregðast skjótt við ef þeir vilja andmæla vinnslunni

22. apríl 2025

Í lok maí 2025 mun Meta hefja þjálfun gervigreindar með því að nýta færslur, myndir og athugasemdir frá notendum Facebook og Instagram í Evrópu. Þetta nær til alls efnis sem hefur verið gert opinbert á þessum miðlum – bæði nýs efnis og þess sem þegar hefur verið birt. Notendur sem vilja koma í veg fyrir að þeirra gögn séu notuð þurfa að bregðast við sem allra fyrst.

Upphafsdegi frestað í fyrra vegna persónuverndar

Áætlað var að hefja þjálfunina árið 2024, en þeirri ákvörðun var frestað eftir að írska persónuverndarstofnunin (IDPC), sem hefur eftirlit með Meta í Evrópu, gerði athugasemdir við lagagrundvöll og skort á gagnsæi. Nú hefur Meta innleitt einfaldara ferli sem gerir notendum kleift að andmæla því að gögn þeirra séu notuð.

Andmæla þarf vinnslunni fyrir lok maí

Allir evrópskir notendur Facebook og Instagram sem náð hafa 18 ára aldri fá tilkynningu um þessa breytingu frá Meta og upplýsingar um hvernig hægt er að andmæla vinnslunni. Ef engin andmæli berast, telst vinnslan samþykkt. Þeir sem vilja koma í veg fyrir að gögn þeirra séu notuð í þjálfun gervigreindar verða að andmæla formlega fyrir lok maí 2025. Að öðrum kosti gæti efnið þeirra þegar verið orðið hluti af þjálfunargögnum sem ekki er hægt að fjarlægja aftur.

Andmæla má vinnslunni með einföldum hætti í gegnum eftirfarandi tengla:

Það athugist að þegar smellt er á ofangreinda hlekki þurfa notendur í einhverjum tilvikum að skrá sig sérstaklega inn á Facebook og Instagram með notandanafni og lykilorði til að fá aðgang að forminu til að andmæla vinnslunni.

Leiðbeiningar um hvernig skal andmæla vinnslunni:

Facebook

Instagram

Sjá frétt á vef írsku persónuverndarstofnunarinnar

Persónuvernd

Hafa samband

postur@personuvernd.is

Sími: 510 9600

Afgreiðslu­tími

Virka daga frá 9 til 12 og 13 til 15

Símatími lögfræðinga er alla fimmtudaga frá 9 til 12

Stað­setning

Laugavegur 166, 4. hæð

105 Reykjavík, Ísland

Kennitala: 560800-2820