Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Persónuvernd Forsíða
Persónuvernd Forsíða

Persónuvernd

Evrópudómstólinn hafnar kröfum Meta í máli fyrirtækisins gegn EDPB

23. maí 2025

Evrópudómstólinn hefur kveðið upp úrskurð í máli Meta gegn Evrópska persónuverndarráðinu (EDPB) þar sem krafist var ógildingar á útgefnu áliti EDPB um "samþykki eða greiðsla" módelið.

Evrópudómstólinn (CJEU) hefur kveðið upp úrskurð í máli Meta Platforms Ireland ltd gegn Evrópska persónuverndarráðinu (EDPB). Málið snerist um áliti ráðsins nr. 8/2024, sem gefið var út á grundvelli persónuverndarreglugerðarinnar – sjá frétt um álitið.

Álit EDPB laut að því undir hvaða kringumstæðum svokölluð „samþykki eða greiðslu“ módel (e. pay or consent) - þar sem notendur stórra netmiðla (e. large online platforms) er boðið að annaðhvort samþykkja vinnslu persónuupplýsinga í þágu hegðunartengdra auglýsinga eða greiða fyrir þjónustuna til að komast hjá slíkri vinnslu – geti talist uppfylla skilyrði um gilt samþykki samkvæmt persónuverndarreglugerðinni. Taldi EDPB að í flestum tilvikum væri ólíklegt að stórir netmiðlar gætu tryggt gilt samþykki þegar notendum væri aðeins gefnir tveir valkostir: að samþykkja vinnslu allra persónuupplýsinga sinna í markaðslegum tilgangi eða greiða.

Meta krafðist þess að Evrópudómstóllinn ógilti álit EDPB í heild eða að hluta og úrskurðaði að það hefði ekki lagaleg áhrif. Einnig fór fyrirtækið fram á skaðabætur vegna meints fjárhagslegs tjóns og að EDPB yrði gert að draga álitið til baka og greiða málskostnað.Dómstóllinn hafnaði kröfu Meta og taldi að þar sem álitið væri ráðgefandi hefði það ekki lagalega bindandi áhrif gagnvart þriðja aðila, því væri hvorki hægt að ógilda það né krefjast skaðabótaá grundvelli þess. Dómstóllinn hafnaði jafnframt skaðabótakröfu Meta á þeirri forsendu að félagið hefði ekki sýnt fram á raunverulegt tjón né nægjanlega bein orsakatengsl milli tjóns og álits EDPB.

Niðurstaða dómstólsins undirstrikar að ráðgefandi álit EDPB skapar ekki sjálfkrafa réttaráhrif og að álitin sem slík geti ekki verið grundvöllur ógildingarkrafna.

Sjá nánar dóm Evrópudómstólsins (CJEU)

Persónuvernd

Hafa samband

postur@personuvernd.is

Sími: 510 9600

Afgreiðslu­tími

Virka daga frá 9 til 12 og 13 til 15

Símatími lögfræðinga er alla fimmtudaga frá 9 til 12

Stað­setning

Laugavegur 166, 4. hæð

105 Reykjavík, Ísland

Kennitala: 560800-2820