Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Náttúruhamfaratrygging Íslands Forsíða
Náttúruhamfaratrygging Íslands Forsíða

Náttúruhamfaratrygging Íslands

Ársfundur NTÍ 2025

22. maí 2025

Ársfundur NTÍ var haldinn á Grand hótel þann 22. maí 2025.

Sigurður Kári stjórnarformaður NTÍ setti fundinn á Grand hótel
Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra ávarpaði fundargesti og í framhaldinu fór Hulda Ragnheiður, forstjóri NTÍ yfir ársreikning stofnunarinnar og kynnti ársskýrslu 2024.
Að lokum flutti Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði, afar áhugavert erindi um áhættu vegna eldgosa og hraunrennslis í þéttbýli á Íslandi og hvort búast megi við því að eldsumbrot verði nálægt fleiri þéttbýlisstöðum en sést hefur til þessa.

Eins og venjulega mættu fulltrúar helstu stofnana og fyrirtækja sem eiga í samstarfi við NTÍ til fundarins, sem ávallt er vel sóttur.

Hægt er að nálgast upptöku af fundinum hér Ársfundur NTÍ 2025

Auk þess er hægt að horfa á upptöku af erindi Magnúsar Tuma um áhættu vegna eldgosa og hraunrennslis í þéttbýli

Hafðu samband

Sími: 575 3300

Netfang: nti@nti.is

Opnunartími

Mánudaga - fimmtudaga:
9 til 15

Föstudaga: 9 til 14

Heimilisfang

Hlíðarsmári 14

201 Kópavogur