Verum klár í sólinni og notum sólarvörn
14. maí 2025
Þegar vorar og sólargeislarnir brjótast fram til að veita okkur kærkomna birtu og hlýju, flykkist fólk út til að njóta útiveru og sólarinnar. Sólin gefur okkur hlýju en einnig útfjólubláa geislun sem getur skaðað okkur ef við förum ekki varlega.

Húð barna er miklu viðkvæmari en húð fullorðinna. Því er það sérstaklega mikilvægt að vernda húð þeirra og koma í veg fyrir að þau brenni í sólinni. Ef farið er út í sólina um miðjan dag er besta vörnin föt og hattur, jafnt fyrir börn og fullorðna, en sólaráburð má bera á þau svæði sem eru ber.
Að njóta sólar og útiveru þarf ekki að vera mikil áhætta ef við fylgjum nokkrum einföldum ráðum og notum heilbrigða skynsemi til að forðast það að brenna í sólinni. Í appi frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni, SunSmart, má til dæmis sjá hvenær þörf er á að nota sólarvörn yfir daginn, hvar sem maður staddur er í heiminum. Gjaldfrjálst er að hlaða niður appinu, bæði í App store og Google Play.
Í skjalinu Verum klár í sólinni eru nokkrar ábendingar um hvernig við getum varist hættulegum geislum sólarinnar á suðrænum slóðum. Gleymum því þó ekki að sökum þess hve tært andrúmsloftið er á Íslandi getur útfjólublá geislun frá sólinni valdið sólbruna á skömmum tíma.