Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Embætti landlæknis Forsíða
Embætti landlæknis Forsíða

Embætti landlæknis

Öndunarfærasýkingar – Vikur 18-19 árið 2025

15. maí 2025

Mælaborð sóttvarnalæknis um öndunarfærasýkingar hefur verið uppfært með gögnum fyrir vikur 18 og 19 árið 2025 (28. apríl– 11. maí 2025).

Staðan á Íslandi

Inflúensugreiningum hefur farið fækkandi sem og greiningum á RS veirusýkingu. Fáir hafa greinst með COVID-19 undanfarið, utan lítillar hópsýkingar sem upp kom á Landspítala í viku 17. Enginn hefur greinst með kíghósta undanfarnar tíu vikur en stöku tilfelli Mycoplasma halda áfram að greinast.

Inflúensa, RS veirusýking og COVID-19

Greiningum á inflúensu hefur farið fækkandi frá upphafi árs en undanfarnar fjórar vikur hefur vikulegur fjöldi verði stöðugur. Í viku 18 greindust átta einstaklingar með inflúensu. Þar af voru sex með inflúensutegund A(pdm09), einn með tegund A(H3) og einn með inflúensutegund B. Af þeim sem greindust voru sex í aldurshópnum 65 ára og eldri og tveir á aldrinum 15-64 ára. Í viku 19 greindust einnig átta með inflúensu, þar af sex með inflúensutegund B og tveir með tegund A(H3). Af þeim sem greindust í viku 19 voru sex á aldrinum 15-64 ára, einn var í aldurshópnum 65 ára og eldri og eitt barn á aldrinum 0-4 ára.

Í vikum 18 og 19 lágu samtals fjórir einstaklingar á Landspítala með inflúensu, allir í aldurshópnum 65 ára og eldri.

Lítið hefur greinst af RS veirusýkingu undanfarnar vikur. Enginn greindist í viku 18 en í viku 19 greindust þrír einstaklingar, þar af einn á aldrinum 15-64 ára og tvö börn undir eins árs aldri. Eitt barn á fyrsta ári lá á Landspítala með RS veirusýkingu í viku 19.

Einn einstaklingur greindist með COVID-19 í viku 18 og þrír í viku 19. Af þessum fjórum sem greindust þessar tvær vikur voru tveir í aldurshópnum 65 ára og eldri og tveir á aldrinum 15-64 ára. Í síðustu samantekt um öndunarfærasýkingar var fjallað um aukinn fjölda greininga á COVID-19 í viku 17 en alls greindust átta einstaklingar þá vikuna. Þessar greiningar reyndust vera hluti af hópsýkingu sem upp kom innan einnar deildar á Landspítala en það skýrir einnig aukinn fjölda sem lá á Landspítala með COVID-19. Bendir þetta því ekki til aukinnar samfélagsdreifingar á COVID-19.

Aðrar öndunarfærasýkingar

Fjöldi sem greinist með öndunarfæraveirur, aðrar en inflúensu, RSV og SARS-CoV-2, hefur sveiflast undanfarnar vikur. Sem fyrr greinast flestir í viku hverri með rhinoveiru (kvef), 14 einstaklingar í viku 18 og 18 einstaklingar í viku 19. Í viku 19 bar einnig á auknum fjölda af greiningum á enteroveiru, samtals 10 einstaklingar.

Fjöldi öndunarfærasýna sem rannsökuð eru í viku hverri hefur fækkað nokkuð stöðugt frá upphafi árs 2025. Í viku 18 voru 143 sýni rannsökuð en fjöldinn var 165 í viku 19. Hlutfall jákvæðra sýna hefur sveiflast á bilinu 35-50% undanfarnar vikur.

Greiningum á Mycoplasma bakteríusýkingu (greiningar lækna óháð rannsóknarniðurstöðu) hefur fækkað frá áramótum en vikulegur fjöldi sveiflast enn. Enginn greindist með Mycoplasma í viku 18 en tveir greindust í viku 19. Enginn hefur greinst með kíghósta undanfarnar tíu vikur.

Staðan í Evrópu

  • Tíðni greininga á öndunarfærasýkingum hefur lækkað í ríkjum ESB/EES en faraldrar inflúensu og RS veirusýkingar geisa þó enn í einhverjum löndum.

  • Inflúensufaraldur náði almennt hámarki í viku 6 þessa árs og er nú lítið um inflúensu í flestum ríkjum.

  • Faraldur RS veirusýkingar náði heilt yfir hámarki í viku 52 ársins 2024 en áfram er þó nokkuð um greiningar.

  • Tíðni COVID-19 (SARS-CoV-2 sýkinga) er enn lág.

Sjá frekari upplýsingar á vef Sóttvarnastofnunar Evrópu.

Almennar sóttvarnir

Við minnum á að:

  • Varast umgengni við aðra sem eru með einkenni sýkingar.

  • Vera heima á meðan þú hefur einkenni og þangað til vel á batavegi og hitalaus í sólarhring.

  • Hylja munn og nef við hósta og hnerra.

  • Sýna sérstaka varúð í nánd við viðkvæma einstaklinga ef þú ert með einkenni sýkingar.

  • Þvo hendur oft og vel.

  • Þrífa sameiginlega snertifleti og lofta út í sameiginlegum rýmum eins og hægt er.

  • Íhuga notkun andlitsgrímu í fjölmenni.

Að óbreyttu verður þetta síðasta samantekt um öndunarfærasýkingar þennan veturinn.

Sóttvarnalæknir