Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Embætti landlæknis Forsíða
Embætti landlæknis Forsíða

Embætti landlæknis

Öndunarfærasýkingar – Vika 5 2025

6. febrúar 2025

Mælaborð sóttvarnalæknis um öndunarfærasýkingar hefur verið uppfært með gögnum út viku 5 ársins 2025 (27. janúar–2. febrúar 2025).

Mynd. Mælaborð um öndunarfærasýkingar

Inflúensan er enn í fullum gangi og forgangs- og áhættuhópar eru áfram hvattir til þess að þiggja bólusetningu. Greiningar á RS-veirusýkingu stefna rólega niður á við með svipuðu mynstri og í fyrravetur. Enginn greindist með COVID-19 í síðustu viku. Greiningar á öðrum öndunarfæraveirum voru svipaðar í viku 5 og í viku 4.

Eins og áður koma langflest sýni til rannsóknar frá spítölum en færri frá heilsugæslunni.

Inflúensa, RS veirusýking og COVID-19

Fjöldi greininga á inflúensu sveiflast áfram milli vikna. Samtals greindust 56 einstaklingar í viku 5, þar af 25 með inflúensutegund A(pdm09), 21 með tegund A(H3) og 10 með inflúensutegund B. Þeir sem greindust voru í öllum aldurshópum en 15 einstaklingar voru í aldurshópnum 65 ára og eldri og átta voru yngri en fimm ára.

Átta einstaklingar voru inniliggjandi á Landspítala með inflúensu í viku 5. Af þeim voru fimm í aldurshópnum 65 ára og eldri og tvö börn á aldrinum 3–4 ára. Þá dvöldu 35 einstaklingar á bráðamóttökum í lengri eða skemmri tíma með inflúensu.

Fjöldi greindra RS-veirusýkinga í viku 5, 25 einstaklingar, var svipaður og í vikum 3 og 4. Þar af voru 12 í aldurshópnum 65 ára og eldri, sex voru 15–64 ára, einn var 5–14 ára og sex voru 2 ára eða yngri. Tíu einstaklingar lágu á Landspítala með RS-veirusýkingu í viku 5, þar af helmingur í aldurshópnum 65 ára og eldri og tvö börn á aldrinum 1–4 ára.

Enginn greindist með COVID-19.

Aðrar öndunarfærasýkingar

Í viku 5 greindist svipaður fjöldi með öndunarveirur, aðrar en inflúensu, RSV og COVID-19, og í viku 4. Stærstur hluti greindist með rhinoveiru (kvef). Hlutfall jákvæðra sýna var einnig svipað og í viku 4, eða 50%.

Greiningum á Mycoplasma bakteríusýkingu (greiningum lækna óháð rannsóknarniðurstöðu) hefur fækkað undanfarið en í viku 5 greindust sjö einstaklingar.

Enginn greindist með kíghósta.

Forvarnir

Bólusetningar eru áhrifaríkasta vörnin gegn alvarlegum veikindum vegna inflúensu. Bóluefni er enn til hjá birgja og á heilsugæslum. Aðstandendur barna 6 mánaða til 4 ára, einstaklingar eldri en 60 ára og aðrir einstaklingar í forgangs- og áhættuhópum eru áfram hvattir til að þiggja bólusetningu en þessir hópar eru í mestri hættu á alvarlegum veikindum vegna inflúensu.

Almennar sóttvarnir, við minnum á að:

  • Varast umgengni við aðra sem eru með einkenni sýkingar.

  • Vera heima á meðan þú hefur einkenni og þangað til vel á batavegi og hitalaus í sólarhring.

  • Hylja munn og nef við hósta og hnerra.

  • Sýna sérstaka varúð í nánd við viðkvæma einstaklinga ef þú ert með einkenni sýkingar.

  • Íhuga notkun andlitsgrímu í fjölmenni.

  • Þvo hendur oft og vel.

  • Þrífa sameiginlega snertifleti og lofta út í sameiginlegum rýmum eins og hægt er.

Sóttvarnalæknir