Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Heilbrigðisstofnun Suðurlands Forsíða
Heilbrigðisstofnun Suðurlands Forsíða

Heilbrigðisstofnun Suðurlands

Bráðaviðbragð í Öræfasveit eykur öryggi íbúa og ferðamanna

20. maí 2025

Frétt

Heilbrigðisráðherra, Alma D. Möller, hefur falið Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU) að halda utan um skipulagningu bráðaviðbragðs í Öræfasveit með það að markmiði að auka öryggi bæði heimamanna og ferðamanna á svæðinu. Viðbragðið felur í sér fasta viðveru sjúkrabíls með reyndum sjúkraflutningamanni sem sinnir bráðaþjónustu í nánu samstarfi við björgunarsveitina Kára í Öræfum. Með þessu fyrirkomulagi er tryggt að unnt sé að bregðast hratt og örugglega við, hvort sem um er að ræða slys, bráð veikindi, mat á áverkum, fyrstu hjálp eða undirbúning fyrir flutning á sjúkrastofnun ef nauðsyn krefur.

Þetta er í þriðja sinn sem bráðaviðbragð af þessu tagi er virkjað í Öræfasveit yfir sumartímann. Þar sem næstu heilsugæslur eru staðsettar í Kirkjubæjarklaustri til vesturs og á Höfn til austurs er heilbrigðisþjónusta fjarri fyrir íbúa og vegfarendur. Með þessari lausn skapast því raunhæf og skjót viðbragðsgeta sem styrkir öryggi á svæðinu til muna.

Góð mönnun heilbrigðisþjónustu á Suðurlandi í sumar

Mönnun heilbrigðisþjónustu í dreifðum byggðum á Suðurlandi hefur gengið mjög vel í sumar. Á Höfn verður tveggja lækna viðvera tryggð allt sumarið. Í Rangárþingi verða jafnan tveir til þrír læknar við störf alla virka daga og á heilsugæslunni í Laugarási verða tveir læknar starfandi yfir allt sumarið. Þá er staðan einnig góð í Vestmannaeyjum, þar sem þrír til fjórir læknar verða á vakt yfir hásumarið.

„Að efla heilbrigðisþjónustu þar sem þörfin er mest, sérstaklega á álagstímum sumarsins, hefur verið eitt af okkar helstu markmiðum. Samvinna við björgunarsveitir og aðra viðbragðsaðila skiptir þar lykilmáli til að tryggja skjót og örugg viðbrögð þegar á reynir. Við erum mjög ánægð með hversu vel hefur tekist að manna lykilsvæði og þannig stuðlað að auknu öryggi bæði heimamanna og gesta,“ segir Díana Óskarsdóttir, forstjóri HSU.