Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Heilbrigðisstofnun Suðurlands Forsíða
Heilbrigðisstofnun Suðurlands Forsíða

Heilbrigðisstofnun Suðurlands

Atlastúka Oddfellow styrkir bráðamóttökuna á Selfossi

19. maí 2025

Frétt

Atlastúka Oddfellow styrkti nýlega bráðamóttökuna á Selfossi um 100.000 krónur. Fyrir upphæðina voru keyptir 3 nýjir stafrænir eyrnahitamælar sem nýtast einnig við talningu á hjartsláttartíðni og öndunartíðni hjá sjúklingum þar sem þeir hafa innbyggða skeiðklukku.

Einnig var keyptur ísskápur fyrir sjúklinga sem geta þurft að liggja lengi á bráðamóttökunni áður en það skapast rými fyrir þá í öðru úrræði. Hann nýtist mjög vel.

Heilbrigðisstofnun Suðurlands þakkar innilega fyrir styrkinn. Þess má geta að í lok hvers árs er haldið sameiginlegt kaffi á stofnuninni þar sem styrktaraðilum er boðið og þakkað fyrir.