Bráða- og slysamóttaka
Bráða- og slysamóttaka HSU er sólarhringsvakt læknis og hjúkrunarfræðings.
Þeir sem leita til bráðamóttöku verða metnir af reyndum hjúkrunarfræðingi eins og fljótt og mögulegt er. Ef hjúkrunarfræðingur metur ekki þörf á bráðameðferð verður bent á heilsugæsluna.
Inn á bráðamóttöku er forgangsraðað þannig að alvarlegustu tilfellin ganga fyrir og minna veikir einstaklingar bíða.
Áður en tekin er ákvörðun um að leita til bráðamóttöku er gott að lesa eftirfarandi atriði hér að neðan til að meta hvort erindi þitt eigi heima þar.
Heimsóknatímar á bráðamóttöku HSU eru á milli kl: 13:00-15:00 og 17:00-20:00. Aðeins er leyfður einn gestur á hvern sjúkling.
Hvenær skal leita til bráðamóttöku:
Við lífshótandi, alvarleg veikindi sem þarf að sinna tafarlaust.
Dæmi:
Skyndileg mæði, meðvitundarskerðing/breyting á meðvitundarástandi
Bráðir brjóstverkir, bráðir kviðverkir eða bráðir bakverkir
Hratt versnandi bólgur og sýkingar
Krampar
Geðrofseinkenni og/eða sjálfsvígshugsanir
Blóðtappar
Bráðaofnæmi
Hætta á andnauð eða líffærabilun
Ofbeldi í nánu sambandi eða kynferðisofbeldi
Við slys eða stærri áverka.
Dæmi:
Höfuðáverkar
Stærri sár og skurðir
Brotin bein
Liðhlaup
Hætta á innvortis blæðingum
Háorkuáverkar (mikil hæð, mikill hraði)
Miklir skyndilegir verkir