Innan HSA starfa fjórir tengiliðir farsældar barna. Þeirra hlutverk er skv. Barna- og fjölskyldustofu eftirfarandi: Öll börn og foreldrar skulu hafa aðgang að tengilið þjónustu í þágu farsældar barns eftir því sem þörf krefur. Frá fæðingu og þar til barn hefur nám í leik- eða grunnskóla er tengiliður starfsmaður heilsugæslustöðvar eða heilbrigðisstofnunar í heilbrigðisumdæmi barns. Sama á við ef þörf er á samþættingu þjónustu á meðgöngu. Ef starfsmaður telur börn og foreldra þarfnast slíkrar þjónustu getur hann komið beiðnum þar að lútandi til tengiliða.
Einnig er hægt að hafa samband við Jónínu G. Óskarsdóttur, fagstjóra hjúkrunar heilsugæslusviðs ef ekki næst í tengilið viðkomandi svæðis.