Hljóðbókasafn Íslands gerir efni aðgengilegt og miðlar því til fólks sem glímir við blindu, sjónskerðingu, lesblindu eða aðra prentleturshömlun. Markmið laga um safnið er að uppfylla réttindi þessara hópa fyrir hönd íslenska ríkisins.
Kynning á Hljóðbókasafni Íslands
Hljóðbókasafn Íslands gefur öllum sem búa við sjónskerðingu eða lestrarörðugleika tækifæri til að njóta bóka og stunda nám.
Hvernig hlusta ég?
App sem þú getur náð í á Play Store fyrir Android eða App Store fyrir Apple síma og spjaldtölvur.
Hlustað á vefnum okkar.
Vefvarp Blindrafélagsins sem þarf sérstakan aðgang og tæki til að nota.
Fréttir
Aukin þjónusta við notendur vefvarps
Hljóðbókasafn Íslands hefur ákveðið að opna fyrir notkun á safninu í tveimur vefvarpstækjum. Breytingin er gerð í samráði við Blindrafélagið enda eru nú nokkrir lánþegar með tvö tæki sér til hagræðingar.
Bók lesin af nýjum talgervli
Fyrsta bókin sem gerð er aðgengileg í talgervils-tilraunaverkefni á Hljóðbókasafni Íslands í samvinnu við máltæknifyrirtækið Grammatek leit dagsins ljós á dögunum.