Nú þarf að huga að sólarvörnum á Íslandi
16. maí 2025
Nú er kominn sá tími árs þegar sólin á Íslandi er nægilega sterk til að valda húðbruna. Það er vel þekkt að húðbruni eykur líkur á húðkrabbameini síðar á ævinni og því er fólk hvatt til að huga að sólarvörnum. Börn eru viðkvæmari en fullorðnir fyrir útfjólubláum geislum sólar og því þarf að vernda þau sérstaklega vel.

UV stuðullinn er gagnleg leið til að vita hvort þörf sé á að nota sólarvarnir á tilteknum stað á tilteknum tíma. Ef UV stuðullinn er 3 eða hærri þá er ráðlagt að verja sig fyrir sólinni, t.d. með flíkum, sólgleraugum, vera í skugga, nota sólarvörn og/eða takmarka útiveru á tímum sem sólin er sterkust. Auk húðbruna geta útfjólubláir geislar t.d. valdið skaða á augum og flýtt fyrir öldrun húðarinnar.
Geislavarnir gera mælingar á UV stuðlinum í Reykjavík og birta niðurstöður mælinganna í rauntíma á uv.is. Síðastliðna viku hefur UV stuðullinn hæst náð 4 þegar sólin hefur verið sterkust. Eins og sést hér að neðan er þörf á að nota sólarvarnir frá um klukkan 10 til 17 en sólin er sterkust milli kl. 12 og 15.

Því hærri sem UV stuðullinn er, því sterkari er útfjólubláa geislun sólar og því styttri tíma tekur það fyrr húðina að brenna í sólinni. Styrkur sólargeislanna nær hámarki á Íslandi í kringum sumarsólstöður þegar sólin er hæst á lofti. Á grafinu hér að neðan má sjá yfirlit yfir UV stuðulinn síðastliðið ár í Reykjavík.

Mikilvægt er að hafa í huga að UV stuðullinn hækkar þegar ferðast er suður á bóginn. Sem dæmi má nefna verður UV-stuðullinn 9 á Tenerife í dag þegar sólin er hæst á lofti. Á ferðalögum erlendis er t.d. hægt að nota alþjóðlega UV smáforritið SunSmart til að sjá hvenær þörf er á að nota sólarvarnir yfir daginn. Þar er hægt að sjá UV stuðulinn hvar sem er í heiminum.
Að lokum bendum við á eftirfarandi fræðsluefni:
Svar á Vísindavefnum um hvenær þarf að nota sólarvarnir á Íslandi: Vísindavefurinn: Er einhver árstími á Íslandi þar sem sólin hefur engin áhrif á húðina og óþarfi að nota sólarvörn?
Viðtal við Birnu Þórisdóttir, sérfræðing í forvörnum hjá Krabbameinsfélaginu í Morgunútvarpi RÚV: https://www.ruv.is/frett/ekkert-sem-kallast-holl-solbrunka.
Í skjali Landlæknisembættisins, Verum klár í sólinni, er að finna ýmis ráð sem gott er að rifja upp.
Á Heilsuveru er vefsíðan Örugg í sólinni með gagnlegar upplýsingar.
Á vef Heilsugæslunnar er grein eftir Margréti Héðinsdóttur hjúkrunarfræðing um þetta efni.