Skýrsla sérfræðingateymis um málefni barna með fjölþættan vanda
19. maí 2025
Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur gefið út skýrslu sérfræðingateymis um málefni barna með fjölþættan vanda

Skýrsluna má nálgast hér en í henni má finna yfirlit yfir mál sem teymið hafði til umfjöllunar árin 2021-2023 ásamt ítarlegum upplýsingum um stofnun og störf teymisins. Formaður teymis er Guðrún Þorsteinsdóttir, sviðstjóri hjá Ráðgjafar og greiningarstöð. Auk hennar eru í teyminu fulltrúar frá BOFS, Geðheilsumiðstöð barna og Velferðarsviði Reykjavíkurborgar. Með teyminu starfa ennfremur sérfræðingar BOFS sem annast m.a. ráðgjöf og móttöku umsókna.
Hlutverk teymisins er tvíþætt:
Að veita sveitarfélögum ráðgjöf við mat á þjónustuþörf og viðeigandi þjónustu, sbr. 1. mgr. 20. gr. laga nr. 38/2018.
Að leggja mat á hvort þjónusta við barn á heimili fjölskyldu þess eða öðru heimili í nærsamfélagi þess sé fullreynd og þörf sé fyrir vistun utan heimilis í sérsniðnu úrræði, skv. 20. og 21. gr. laga nr. 38/2018.